Auglýsing

Heilbrigðisráðherra hefur nú gefið út nýja reglugerð sem tekur gildi 15. apríl og gildir til 5. maí nk. Með henni eru gerðar verulegar tilslakanir á íþróttastarfi á ný og verður aftur opnað fyrir starfsemi sundstaða og líkamsræktarstöðva, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.  
Helstu breytingar í reglugerð heilbrigðisráðherra sem snerta íþróttastarfið eru eftirfarandi:

• Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna verða heimilar og hámarksfjöldi þátttakenda miðast við 50 manns í rými. Heimilt verður að hafa allt að 100 áhorfendur á íþróttaviðburðum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem lúta að skráningu, eins meters nándarmörkum á milli ótengdra aðila og grímuskyldu. Einungis er heimilt að hafa tvö sótthólf fyrir að hámarki 100 áhorfendur í hvoru hólfi, á íþróttaviðburðum.

• Sund- og baðstaðir mega opna fyrir 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2015 eða síðar telja ekki með í hámarksfjölda.

• Líkamsræktarstöðvar mega opna að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, m.a. um sótthreinsun, skráningu í tíma, hólfun og 20 manna hámarksfjölda.

• Skíðasvæði mega opna fyrir 50% af hámarksfjölda gesta en þar verður að gæta að tveggja metra lágmarksfjarlægð og nota grímur sé ekki hægt að tryggja hana.

• Opinberir staðir mega taka á móti gestum, en hámarksfjöldi í rými er 20. Gæta þarf að tveggja metra lágmarksfjarlægð og nota grímur sé ekki hægt að tryggja hana.

Sjá frétt á vef heilbrigðisráðuneytis.

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra, sem gildir til 5. maí 2021.

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ