GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Veigar Heiðarsson úr Golfklúbbi Akureyrar fór vel af stað á South of Ireland Men’s Amateur Open Championship, sem hófst á Írlandi í gær. Veigar lék fyrsta hringinn á 67 höggum, fimm höggum undir pari, og var jafn í fimmta sæti að honum loknum.

Hægt er að fylgjast með skori mótsins hér

South of Ireland Men’s Amateur Open Championship fer fram dagana 22.-26. júlí og er eitt stærsta áhugamannamót Írlands. Mótið var fyrst haldið árið 1895 og fer nú fram í 124. sinn. Meðal fyrri sigurvegara eru Paul McGinley og Graeme McDowell.

Mótið er leikið á Old Course vellinum hjá Lahinch Golf Club. Völlurinn er par 72 og leikinn 6.355 metra langur.

Leiknar eru 36 holur í höggleik fyrstu tvo keppnisdagana. Að þeim loknum komast 64 efstu kylfingarnir áfram í holukeppnina, þar sem leikin er útsláttarkeppni þar til einn stendur eftir sem sigurvegari á sunnudag.

Veigar er í góðri stöðu fyrir annan hring höggleiksins eftir frábæra byrjun. Hann var tveimur höggum á eftir Daniel Hayes, sem leiddi mótið á sjö höggum undir pari, og höggi á eftir öðru sætinu.

Keppendahópurinn er afar sterkur og í honum eru sex kylfingar sem eru á meðal 100 efstu á heimslista áhugamanna. Mótið er einnig síðasta tækifæri margra breskra og írskra kylfinga til að vekja athygli fyrir valið í Walker Cup-lið Bretlands og Írlands, sem verður tilkynnt að móti loknu.

Veigar lauk nýverið sínu fyrsta tímabili með East Tennessee State University í bandaríska háskólagolfinu. Hann var valinn í nýliðalið Southern Conference eftir tímabilið, þar sem hann lék 33 keppnishringi og var með meðalskor upp á 73,33 högg.

Óskum Veigari góðs gengis!

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ