GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar heldur Lexus bikarinn á GSÍ mótaröðinni dagana 23.-25. júlí. Mótið er sjötta mótið á GSÍ mótaröðinni á þessu tímabili og það síðasta fyrir Íslandsmótið í golfi.

Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit.

Í karlaflokki eru 54 kylfingar skráðir til leiks. Golfklúbbur Reykjavíkur og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar senda flesta kylfinga í mótið, en 13 kylfingar koma úr hvorum klúbbnum.

Fimm forgjafarlægstu kylfingarnir eru allir með +3,9 eða lægra. Hér má sjá lista yfir þá.

  1. Logi Sigurðsson, Golfklúbbi Suðurnesja +5,5
  2. Daníel Ísak Steinarsson, Golfklúbbnum Keili +4,9
  3. Axel Bóasson, Golfklúbbnum Keili +4,8
  4. Aron Snær Júlíusson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar +4,6
  5. Aron Emil Gunnarsson, Golfklúbbi Selfoss +3,9

Í kvennaflokki mæta 16 kylfingar til leiks frá níu golfklúbbum. GKG á flesta keppendur, alls fjóra.

Fimm forgjafarlægstu kylfingarnir eru allir með +0,3 eða lægra. Hér má sjá lista yfir þá.

  1. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur +1,6
  2. Karen Lind Stefánsdóttir, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar +1,6
  3. Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Golfklúbbi Suðurnesja +1,6
  4. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Golfklúbbi Akureyrar +1,3
  5. Guðrún Birna Snæþórsdóttir, Golfklúbbnum Keili 0,3

Mikilvæg stig á stigalista GSÍ

Mótið er sjötta mót ársins á GSÍ mótaröðinni. Línurnar eru farnar að skýrast og stigin á síðustu tveimur mótunum gífurlega dýrmæt. Aron Snær Júlíusson og Perla Sól Sigurbrandsdóttir hafa leitt listana frá fyrsta móti og eru í góðri stöðu. Það verður spennandi að fylgjast með hvernig mótið þróast um helgina og hvaða áhrif það mun hafa á stigalistana.

Hér má sjá stöðu á stigalistum karla og kvenna.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ