Ladies European Tour 2018: Investec South African Women's Open, Westlake Golf Club, Valdis Jonsdottir.
Auglýsing

Valdís Þóra Jónsdóttir, úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, hefur lokið leik á úrtökumóti fyrir Áströlsku atvinnumótaröðina.

Valdís Þóra endaði í 16.-18. sæti en hún lék á +3 samtals.  Alls tóku 81 atvinnukylfingar þátt frá 30 þjóðum.

Valdís Þóra náði með árangri sínum að tryggja sér keppnisrétt á ALPG eða áströlsku mótaröðinni í kvennaflokki. Þar sem að tíu kylfingar af alls 20 efstu á þessu úrtökumóti er Valdís í hópi 10 kylfinga sem fengu keppnisrétt á ALPG.

Átta efstu á þessu móti tryggðu sér keppnisrétt á ISPS Handa mótinu sem er hluti af LPGA mótaröðinni. Valdís Þóra er með keppnisrétt á því móti sem fram fer 7.-10. febrúar.

Fimmtán efstu tryggðu sér keppnisrétt á Australian Ladies Classic Bonville, ActewAGL Canberra Classic og Women’s NSW Open. Valdís Þóra er með keppnisrétt á þeim mótum sem fram fara í lok febrúar á þessu ári.

„Ástæðan fyrir að ég spila í þessu móti er sú að þetta gefur mér fleiri möguleika á að komast inn í Opna Ástralska mótið á þessu ári sem og því næsta og einnig inn í Vic Open á næsta ári en ég er nú þegar komin inn í það mót á þessu ári. Einnig fannst mér gott að fá eitt svona „upphitunarmót“ hér í Ástralíu áður en hin mótin byrja og ná flugþreytunni alveg úr mér fyrir þau mót,“ skrifar Valdís Þóra á fésbókarsíðu sína.

Skor mótsins er uppfært hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ