Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR hefja leik í dag á atvinnumóti í Halmstad í Svíþjóð. Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni og í samvinnu við Nordea Tour atvinnumótaröðina.
Valdís Þóra náði sínum besta árangri á síðasta móti sem fram fór á Spáni þar sem hún endaði í þriðja sæti. Alls eru leiknir þrír hringir á mótinu.
Hægt er að fylgjast með gangi mála hér.