Auglýsing

Úrslitin ráðast í dag í Landsmótinu í í TrackMan golfhermum – og verður sýnt frá úrslitunum í beinni útsendingu á Sportstöð hjá Sýn – og hefst útsendingin kl. 19:00.

Úrslitin fara fram í Íþróttamiðstöð GKG og hefst keppni kl. 16:00 í dag. Í þessu móti er leikið á Korpúlfsstaðavelli – (Sjórinn/Áin) sem er par 72.

Tvær undankeppnir fóru fram í vetur og var hægt að taka þátt á þeim stöðum þar sem að Trackman golfhermar eru til staðar.

Efstu 8 karlar og efstu 8 konur komust í úrslitakeppnina sem fram fer í dag og kvöld.

Hér má sjá stöðuna í karlaflokki

Hér má sjá stöðuna í kvennaflokki

Lokastaðan í kvennaflokki í síðari undankeppninni er hér:

Lokastaðan í karlaflokki í síðari undankeppninni er hér:

Landsmótið í golfhermum hefur notið vinsælda hjá kylfingum víðsvegar um landið. Leikinn er höggleikur án forgjafar í karla- og kvennaflokki. Tvær undankeppnir fóru fram í vetur.

Hægt var að taka þátt í undankeppnum hvar sem eru TrackMan golfhermar, með þeim möguleika að pútta. Stillingar mótsins tryggðu að vallaraðstæður voru eins hvar sem leikið var. 

Stillingar eru fyrirfram ákveðnar og eru eins í öllum hermum. Brautir eru stilltar á mestu mýkt en flatir eru harðar með miðlungs hraða (flatir 9 fet á Stimp). Holustaðsetningar eru medium. Enginn vindur. Pútt eru hluti af leiknum og hermir því stilltur á Manual pútt. Hermir gefur pútt innan við 2,4 metra. 

Leikið er af hvítum teigum í karlaflokki og bláum í kvennaflokki. 

1. sæti: 130.000 kr. 

2. sæti: 50.000 kr. 

3. sæti: 30.000 kr. 

Alls luku 153 keppendur leik í fyrri undankeppninni

Úrslit í fyrri undankeppninni í kvennaflokki eru hér:

Úrslit í fyrri undankeppninnin í karlaflokki eru hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ