Auglýsing

Fyrsta mót tímabilsins á Unglingamótaröð GSÍ, SS-mótið, fer fram á Strandarvelli hjá Golfklúbbi Hellu dagana 28.-30. maí 2021.

Alls eru fimm mót á dagskrá í sumar eins og sjá má á veggspjaldinu hér fyrir neðan.

Þátttakendur skulu skrá sig í SS-mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59  þriðjudaginn 25.maí. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á ghr@ghr.is 

Smelltu hér til að skrá þig:

Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Leikfyrirkomulag

Höggleikur, 18 holur á dag. Í flokkum 17-18 ára og 19-21 árs eru leiknar 54 holur en 36 holur í öðrum flokkum. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.

Áætlaðir rástímar

Föstudagur     13:00 – 16:00  Athugið: Einungis flokkar 17-18 ára og 19-21 árs
Laugardagur    08:00 – 16:00
Sunnudagur     08:00 – 16:00 

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða birtir á golf.is  á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en síðan verður raðað út eftir skori. 

Rásröðun 

Föstudag: 19-21 árs, 17-18 ára.
Laugardag: 19-21 árs, 17-18 ára, 15-16 ára og 14 ára og yngri.  
Sunnudag: 15-16 ára,14 ára og yngri, 19-21 árs og 17-18 ára, 

Skráning

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59  þriðjudaginn 25.maí. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á ghr@ghr.is Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Æfingahringur

Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að bóka rástíma. En athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Athugið almennar reglur um æfingahring.

Kylfuberar

Kylfuberar eru leyfðir í flokki 14 ára og yngri en bannaðir í öðrum flokkum.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.

Verðlaunaafhending 

Verðlaunaafhending er haldin strax að lokinni keppni í hverjum aldursflokki fyrir sig.

Styrktaraðili er Sláturfélag Suðurlands

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ