Auglýsing

Þriðja mót tímabilsins á Unglingamótaröðinni fer fram á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur dagana 14.-16. júlí 2022.

Mótið er haldið í samstarfi við Kristal. Tveir elstu aldursflokkarnir hefja keppni fimmtudaginn 14. júlí en aðrir aldursflokkar hefja leik föstudaginn 15. júlí og lokakeppnisdagur hjá öllum er laugardagurinn 16. júlí 2022.

Opið er fyrir skráningu – smelltu hér eða á myndina hér fyrir neðan.

Keppnisskilmálar – Unglingamótaröðin (3) í samstarfi við Kristal

Golfklúbbur Reykjavikur 14.-16. Júlí 2022 – Korpa -Landið/Áin

Leikfyrirkomulag

Höggleikur, 18 holur á dag. Í flokkum 17-18 ára og 19-21 árs eru leiknar 54 holur en 36 holur í öðrum flokkum. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.

Áætlaðir rástímar

Fimmtudagur 08:00-11:00 – Athugið: Einungis flokkar 17-18 ára og 19-21 árs
Föstudagur 08:00 – 17:00
Laugardagur 07:30 – 16:30

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða birtir á golf.is á þriðjudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en síðan verður raðað út eftir skori.

Rásröðun

Fimmtudag: 19-21 árs, 17-18 ára.
Föstudag: 19-21 árs, 17-18 ára, 14 ára og yngri og 15-16 ára
Laugardag: 14 ára og yngri,15-16 ára, 17-18 ára og 19-21 árs

Þátttökuréttur

Hámarksforgjöf í flokkum 17-18 ára og 19-21 árs kk er 15 í fgj

Hámarksforgjöf í flokkum 17-18 ára og 19-21 árs kvk er 25 í fgj

Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára og 14 ára og yngri kk er 30

Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára og 14 ára og yngri kvk er 36

Ef fjöldi skráðra fer yfir hámark í hverjum flokki miðast forgjöf kylfinga kl:8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur hverjir fá þátttökurétt.

Ef ekki næst hámarksfjöldi í einhverjum flokki verður mótstjórn heimilt að fjölga í öðrum.

Mótsstjórn heimilt að sameina flokka ef þátttakendur í flokki eru færri en 4.

19 – 21 árs
Mest 18 keppendur
Piltar
Hvítir teigar
6.000,- kr
Stúlkur
Bláir teigar
6.000,- kr

17 – 18 ára

Mest 42 keppendur
Piltar
Hvítir teigar
6.000,- kr
Stúlkur
Bláir teigar
6.000,- kr

15 – 16 ára
Mest 42 keppendur
Drengir
Gulir teigar
5.000,- kr
Stúlkur
Bláir teigar
5.000,- kr

14 ára og yngri
Mest 42 keppendur
Strákar
Bláir teigar
5.000,- kr
Stelpur
Rauðir teigar
5.000,- kr

Alls 144 keppendur

Skráning

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 mánudaginn 11. júlí. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á harpa@grgolf.is.

Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Æfingahringur

Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við Evu Björnsdóttir á netfangið grskrifstofa@grgolf.is til að bóka rástíma. En athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Athugið almennar reglur um æfingahring.

Kylfuberar

Kylfuberar eru leyfðir í flokki 14 ára og yngri en bannaðir í öðrum flokkum.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda. Nándarverðlaun verða veitt á öllum par 3 holum vallarins á lokadegi mótsins.

Verðlaunaafhending

Verðlaunaafhending verður haldin að loknum leik í hverjum flokk á annari hæð Korpu.

Mótsstjórn

Harpa Ægisdóttir, Ómar Örn Friðriksson, Þórður Rafn Gissurarson og Aron Hauksson

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ