GSÍ fjölskyldan
Aerial view of a sunny golf course with green fairways, sand bunkers, and a clubhouse in the distance near the coast.
Alls verða 280 kylfingar í ungmennamótum helgarinnar.
Auglýsing

Icewear mót GKG á Unglingamótaröðinni og Golf 14 fara fram dagana 4.-6. júní 2026 á Leirdalsvelli og Mýrinni.

Metfjöldi kylfinga er skráður í mótið í ár. Í Unglingamótaröðina mæta 102 kylfingar og 178 kylfingar verða á meðal keppenda í Golf 14 móti vikunnar. Því verða alls 280 ungir og efnilegir kylfingar að leik á golfsvæði GKG næstu daga, en Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er framkvæmdaraðili mótsins.

Icewear bikarinn 15-18 ára

Í flokki 15-18 ára eru leiknar 54 holur á Leirdalsvelli og er keppt í höggleik án forgjafar dagana 4.-6. júní.

Að loknum 36 holum er leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni.

Keppt er samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.

advanced divider
advanced divider

Icewear Golf 14 – Leirdalur

Í Icewear Golf 14 á Leirdalsvelli er leikinn höggleikur án forgjafar dagana 5. og 6. júní – alls 36 holur.

Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kk er 30 og hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kvk er 36.

Keppt er samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.

advanced divider

Icewear Golf 14 – Mýrin

Icewear Golf 14 fer fram á Mýrinni dagana 5. og 6. júní. Þar eru leiknar 18 holur á tveimur dögum (9 og 9) með höggleiks afbrigði, án forgjafar. 

Mótið er hugsað sem fyrsta skref og stuðningur við keppnisþátttölu ungra kylfinga. Markmiðið er að hafa gaman og aðaláherslan lögð á að læra leikinn og mismunandi leikform hans.

Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar eru hvattir til þess að taka virkan þátt í að gera þessi mót sem skemmtilegust fyrir þátttakendur með leiðbeinandi og jákvæðu hugarfari í kringum mótin. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ