Arkea Montauban Ladies Open mótið á LET Access mótaröðinni hefst í dag. Mótið er það þriðja á LET Access tímabilinu, en leikið er á Golf de Montauban vellinum í Frakklandi.
Þrír íslenskir kylfingar eru skráðir til leiks í mótið: Hulda Clara Gestsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir.
Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Allar hafa þær leikið gott golf á mótaröðinni til þessa og náð í gegnum niðurskurð í báðum mótunum.
Hulda Clara varð áttunda í fyrsta móti sumarsins og situr í 23. sæti stigalistans. Hún á rástíma kl. 12:00 að staðartíma með hinni áströlsku Hannah Reeves, og Genevieve Ling frá Malasíu.
Andrea náði frábærum árangri í sama móti síðasta sumar, þegar hún endaði þriðja á sex höggum undir pari. Hún situr í dag í 44. sæti stigalistans og stefnir að því að gera enn betur í mótinu en í fyrra.
Í viðtali við LET Access sagðist Andrea hafa fengið að búa hjá breskri fjölskyldu síðasta sumar, á meðan mótinu stóð. Hún er nú mætt þangað á nýjan leik og telur að þessar kunnuglegu aðstæður geti hjálpað henni um helgina.
Ragnhildur hefur hafið tímabilið af krafti og er í fjórða sæti stigalistans eftir tvö mót. Hún varð önnur í síðasta móti LET Access, og stóð uppi sem sigurvegari Korpubikarsins á GSÍ mótaröðinni um síðastliðna helgi.



