Golfsamband Íslands

Unglingamótaröð GSÍ 2022 – Gunnlaugur Árni Sveinsson stigameistari í flokki 17-18 ára

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, er stigameistari 2022 á unglingamótaröð GSÍ flokki 17-18 ára. Jóhann Frank Halldórsson, GR, varð annar og Róbert Leó Arnórsson, GKG, varð þriðji.

Gunnlaugur Árni tók þátt á öllum fimm mótum tímabilsins. Hann sigraði á fjórum mótum og varð í öðru sæti á einu. Hann fagnaði báðum Íslandsmeistaratitlunum í þessum aldursflokki, í höggleik og holukeppni.

Jóhann Frank tók þátt á fjórum mótum á tímabilinu. Hann sigraði á einu þeirra, varð einu sinni í öðru sæti og í þriðja sæti á einu móti. Hann var alltaf á meðal fjögurra efstu á þeim mótum sem hann tók þátt í.

Róbert Leó tók þátt á öllum fimm mótum tímabilsins. Hann varð annar á Íslandsmótinu í höggleik og alltaf á meðal tíu efstu í þeim mótum sem hann tók þátt.

Smelltu hér fyrir stigalistann í heild sinni:

Frá vinstri: Róbert Leó, Gunnlaugur Árni, Jóhann Frank. Mynd/Frosti.
Exit mobile version