Örninn Golf heimslistamótið fór fram um s.l. helgi á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddir.
Veðrið setti sinn svip á keppnishaldið en leiknar voru 54 holur á þremur keppnisdögum – og var lokakeppnisdagurinn afar krefjandi fyrir keppendur.
Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði í karlaflokki á 220 höggum (72-69-79). Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, varð annar á 225 höggum og Aron Emil Gunnarsson, GOS, varð þriðji á 227 höggum.
Örninn Golfverslun var styrktaraðili mótsins og hlutu vinningshafar gjafabréf í versluninni.
![karlaroddur.jpeg - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2021/09/20210912_130336-2048x922-1-1024x461.jpeg)
![download-1 - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2021/09/download-1-1024x723.png)