Auglýsing

Titleist Unglingaeinvígið fer fram hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar föstudaginn 17. september  næstkomandi. Öllum bestu unglingum landsins er boðin þátttaka en leiknar verða holur 10-18  á Hlíðavelli. 4 efstu drengir og 4 efstu stúlkur á stigalista GSÍ í hverjum aldursflokki fá boð í  mótið auk klúbbmeisturum GM í sama aldursflokki. 

Leikin er forkeppni í hverjum aldursflokki með „shootout“ fyrirkomulagi þar sem sá kylfingur  með hæsta skorið fellur úr keppni. Leiknar eru 7 holur í forkeppni eða þangað til að 3  kylfingar standa eftir. Í forkeppni eru leiknar holur 10, 11, 14, 15, 16, 17 og 18.  

Keppt er í eftirfarandi aldursflokkum. 

  • 14 ára og yngri (Strákar á bláum teig, stúlkur á rauðum) 
  • Ræst á 10. teig klukkan 12:30) 
  • 15-16 ára (Strákar á gulum teig, stúlkur á bláum) 
  • Ræst á 14. teig klukkan 12:30 
  • 17-18 ára (Strákar á hvítum teig, stúlkur á bláum) 
  • Ræst á 16. teig klukkan 12:30 

Úrslitin hefjast síðan í kjölfarið á forkeppninni. Í úrslit komast þeir kylfingar sem standa eftir í  hverjum aldursflokki, 3 kylfingar úr hverjum flokki. Sigurvegari síðasta árs, Björn Viktor  Viktorsson, fer beint í úrslit. Í úrslitum hefja 10 kylfingar leik og leika holur 10-18 á Hlíðavelli. 1 kylfingur dettur út á hverri holu þangað til að einn kylfingur stendur eftir. Veitt  eru verðlaun fyrir efstu 6 sætin. 

Á milli umferða er keppendum boðið upp á súpu og brauð. Gert er ráð fyrir að úrslitin hefjist  klukkan 16:00.  

Sigurvegarar Unglingaeinvígisins frá upphafi:  

2005 – Sveinn Ísleifsson, GKj  

2006 – Guðni Fannar Carrico, GR  

2007 – Andri Þór Björnsson, GR  

2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson, GKG  

2009 – Andri Már Óskarsson, GHR  

2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK  

2011 – Ragnar Már Garðarson, GKG  

2012 – Aron Snær Júlíusson, GKG  

2013 – Ingvar Andri Magnússon, GR  

2014 – Ingvar Andri Magnússon, GR  

2015 – Björn Óskar Guðjónsson, GM  

2016 – Henning Darri Þórðarson, GK  

2017 – Ragnar Már Ríkarðsson, GM  

2018 – Dagbjartur Sigurbrandsson, GR  

2019 – Tómas Eiríksson Hjaltested, GR 

2020 – Björn Viktor Viktorsson, GL

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ