Tinna Jóhannsdóttir.
Auglýsing

Tinna Jóhannsdóttir úr Keili fagnaði stigameistaratitlinum á Eimskipsmótaröðinni í golfi 2015. Þetta er í fyrsta sinn sem Tinna nær þessum titli en fyrst var keppt um stigameistaratitilinn árið 1989. Þrír kylfingar úr Keili raða sér í þrjú efstu sætin á stigalistanum í kvennaflokki en Íslandsmeistarinn Signý Arnórsdóttir varð önnur og Anna Sólveig Snorradóttir varð þriðja.

Tinna sigraði á tveimur mótum á Eimskipsmótaröðinni á þessu tímabili en hún sigraði á Nýherjamótinu sem var lokamót Eimskipsmótaraðarinnar um s.l. helgi. Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR hefur oftast verið stigahæst í kvennaflokki á Eimskipsmótaröðinni eða níu sinnum alls, þar á eftir kemur Ólöf María Jónsdóttir með sex stigameistaratitla.

Karen Guðnadóttir úr GS varð stigameistari í fyrra en hún endaði í fimmta sæti á þessu tímabili.

20 efstu á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar 2015:


1. Tinna Jóhannsdóttir, GK 6465.00

(4. sæti Egils-Gullmótið, 1. sæti Securitasmótið, 8. sæti Símamótið, 9. sæti Íslandsmótið í holukeppni, 5. sæti Íslandsmótið í golfi, 1. sæti Nýherjamótið)

2. Signý Arnórsdóttir, GK 5817.50


3. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 5486.25

4. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 5442.50

5. Karen Guðnadóttir, GS 4840.00

6. Heiða Guðnadóttir, GM 4733.75

7. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 4620.00

8. Helga Kristín Einarsdóttir, NK 3665.00

9. Berglind Björnsdóttir, GR 3665.00

10. Sunna Víðisdóttir, GR 3432.50

11. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 3020.00

12. Særós Eva Óskarsdóttir, GKG 2258.75

13. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 2250.00

14. Þórdís Geirsdóttir, GK 2210.00

15. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG 1910.00

16. Saga Traustadóttir, GR 1902.50

17. Ingunn Einarsdóttir, GKG1707.50

18. Eva Karen Björnsdóttir, GR 1408.75

19. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 1195.00

20. Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, GA 1167.50

Kvennaflokkur:


1989 Karen Sævarsdóttir (1)

1990 Ragnhildur Sigurðardóttir (1)

1991 Ragnhildur Sigurðardóttir (2)

1992 Karen Sævarsdóttir (2)

1993 Ólöf M. Jónsdóttir (1)

1994 Ólöf M. Jónsdóttir (2)

1995 Ólöf M. Jónsdóttir (3)

1996 Ólöf M. Jónsdóttir (4)

1997 Ólöf M. Jónsdóttir (5)

1998 Ólöf M. Jónsdóttir (6)

1999 Ragnhildur Sigurðardóttir (3)

2000 Herborg Arnarsdóttir (1)

2001 Ragnhildur Sigurðardóttir (4)

2002 Herborg Arnarsdóttir (2)

2003 Ragnhildur Sigurðardóttir (5)

2004 Ragnhildur Sigurðardóttir (6)

2005 Ragnhildur Sigurðardóttir (7)

2006 Ragnhildur Sigurðardóttir (8)

2007 Nína Björk Geirsdóttir (1)

2008 Ragnhildur Sigurðardóttir (9)

2009 Signý Arnórsdóttir (1)

2010 Valdís Þóra Jónsdóttir (1)

2011 Signý Arnórsdóttir (2)

2012 Signý Arnórsdóttir (3)

2013 Signý Arnórsdóttir (4)

2014 Karen Guðnadóttir (1)

2015 Tinna Jóhannsdóttir (1)

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ