/

Deildu:

Auglýsing

Rétt tæplega 20 þúsund kylfingar voru skráðir í 62 golfklúbba víðs vegar um landið árið 2020 sem var 11% aukning á milli ára. Þetta er aukning um 2.000 kylfinga frá fyrra ári. Stærð íþróttasambanda innan ÍSÍ, eftir fjölda iðkenda þar sem Knattspyrnusambandið er stærst með tæplega 30.000 félaga, en næst kemur Golfsambandið með um 20.000 félaga.

Í nokkur ár hefur Golfsambandið tekið saman tölfræði og lykiltölur fyrir golfklúbba, samstarfsaðila og aðra hagsmunaaðila. Þessar tölur sýna umfang, þróun og samsetningu golfhreyfingarinnar á Íslandi. Eftirspurn í að leika golf á síðustu árum hefur verið mikil.

Hér fyrir neðan er tafla sem sýnir þá þróun sem hefur átt sér stað hvað varðar fjölda kylfinga frá árinu 1932.

Árið 1934 voru 132 kylfingar skráðir á Íslandi, árið 1992 fór fjöldi kylfinga í fyrsta sinn yfir 5000 á Íslandi.

Árið 2002 fór fjöldi kylfinga á Íslandi í fyrsta sinn yfir 10.000.

Árið 2009 fór fjöldi kylfinga í fyrsta sinn yfir 15.000 og á árinu 2020 fór þessi fjöldi í 19.837.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ