Þórður Rafn Gissurarson.
Auglýsing

Þórður Rafn Gissurarson lék vel í dag á öðrum keppnisdegi af alls þremur á Pro Golf atvinnumótaröðinni. GR-ingurinn lék á 66 höggum eða -5 og er hann samtals á -6 (70-66). Lokahringurinn fer fram á þriðjudaginn og er Þórður í þegar þetta er skrifað í þriðja sæti en keppni er ekki lokið í dag. Mótið fer fram í Agadir í Marokkó á Golf de L’Ocean golfvallasvæðinu.

Staðan í mótinu: 

Þýska Pro Golf atvinnumótaröðin er í hópi mótaraða sem eru í þriðja styrkleikaflokki í Evrópu á eftir Áskorendamótaröðinni og sjálfri Evrópumótaröðinni. Þórður er að leika á þriðja mótinu á þessu ári á Pro Golf mótaröðinni. Hann endaði í 20. og 13. sæti á fyrstu tveimur mótunum.

 

Screenshot (2)

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ