Golfsumarið er hafið og vellir um allt land að opna á næstu dögum, sumir hafa jafnvel
þegar tekið á móti fyrstu kylfingum sumarsins líkt og lesa má á golf.is.
Það er eitthvað við fyrsta teighögg sumarsins. Sumarið er sannarlega tíminn þegar við
finnum aftur þessa einstöku ró sem golfvöllurinn getur gefið, þar sem tíminn hægir á sér
og við njótum augnabliksins og samverunnar. Og keppnin hefst, hvort sem er við
andstæðinginn eða okkar eigin hugsanir.
Við hvetjum ykkur til að njóta allra frábæru golfvallanna okkar. Um land allt bíða 63
golfklúbbar eftir því að taka á móti ykkur, fallegir, fjölbreyttir og fullkomnir fyrir sumarið
fram undan. Golfið er í dag stærsta almenningsíþrótt landsins, með tæplega 30.000
iðkendur. Á sama tíma vitum við að aðstöðuleysi á höfuðborgarsvæðinu er orðið
alvarlegt og biðlistar langir. Rödd kylfinga skiptir máli – sérstaklega nú þegar
sveitarstjórnarkosningar nálgast.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar golfklúbbanna ásamt starfsfólki Golfsambands Íslands eru á
fullu að undirbúa vertíðina og krafturinn í hreyfingunni hefur sjaldan verið meiri. Mótaröð
GSÍ er komin á sinn stað með yfir 40 mót fyrir kylfinga á öllum aldri. Golfhátíðin á Flúðum er framundan og lofar frábærri upplifun fyrir kylfinga á aldrinum 11-14 ára. Golfdagar verða einnig haldnir um allt land í nánu samstarfi við PGA og KPMG, þar sem markmiðið er að kynna golfíþróttina á skemmtilegan hátt.
Við bjóðum unga fólkið okkar hjartanlega velkomin. Nýliða bjóðum við einnig velkomna
og við hvetjum ykkur til að sækja í nýliðakynningar og vera iðin við að kynna ykkur
golfreglurnar ásamt hefðum og venjum okkar frábæru einstöku íþróttar.
Njótið golfsins, samverunnar – og sláið í gegn í orðsins fyllstu merkingu.
Sumarkveðja,
Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ
