Auglýsing

Gríðarlega sterkur keppendahópur er skráður til leiks á fyrsta mót tímabilsins á heimslistamótaröðinni á Íslandi, ÍSAM-mótið, fer fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar dagana 16.-17. maí.

Margt sem bendir til þess að þetta mót verði eina WAGR mótið í Evrópu og jafnvel heiminum sem leikið verður á þessum tíma. Leikið verður eftir sérstökum Covid-19 keppnis – og staðarreglum.

Mótið er einnig áhugavert fyrir þær sakir að keppnisvöllurinn, Hlíðavöllur, verður einnig í aðalhlutverki þegar Íslandsmótið í golfi hefst í byrjun ágúst. Og verður það í fyrsta sinn sem Íslandsmótið í golfi fer fram hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar.

Samkvæmt bestu heimildum golf.is hefur keppendahópur á golfmóti á Íslandi ekki verið sterkari í mörg misseri. Íslandsmótið í golfi á Akureyri árið 2016 gæti komist nálægt þessum styrkleika.

Helgina 23.-24 maí heldur fjörið síðan áfram á fyrsta stigamóti ársins á mótaröð GSÍ. Það fer fram á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi og þar er búist við rúmlega 140 keppendum. Og þar á meðal flestum þeirra sem nú þegar hafa skráð sig til leiks á ÍSAM-mótið.

Heimslistamótaröðin í golfi var sett á dagskrá á Íslandi árið 2019.

Markmiðið með mótaröðinni er að keppendur fái tækifæri til að styrkja stöðu sína á heimslista áhugakylfinga WAGR.

Atvinnukylfingum var sérstaklega boðið á mótið í ár þar sem að engin verkefni eru fyrir atvinnukylfinga á erlendis.

Í kvennaflokki eru atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK), Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) skráðar til leiks. Þær hafa ekki keppt á sama golfmóti frá því á Íslandsmótinu á Akureyri árið 2016.

Í karlaflokki eru einnig allir sterkustu atvinnukylfingar landsins á meðal keppenda. Axel Bóasson (GK), Andri Þór Björnsson (GR), Bjarki Pétursson (GKB), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR, Haraldur Franklín Magnús (GR) og Ólafur Björn Loftsson (GKG).

Í flokki áhugakylfinga eru einnig allir sterkustu áhugakylfingarnir. Flestir þeirra sem stunda nám í Bandaríkjunum eru staddir á Íslandi vegna Covid-19 og af þeim sökum er keppendahópurinn á heimslistamóti ÍSAM-mótinu mjög sterkur.

Skráningu lýkur í kvöld og má sjá listann yfir þá sem hafa skráð sig hér.

Alls verða þrjú mót á dagskrá á heimslistamótaröðinni en tvö mót verða í september.

Keppendafjöldinn er takmarkaður og aðeins 39 kylfingar komast inn á þetta mót.

Þátttökurétt hafa atvinnu – og áhugakylfingar.

Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í golfklúbbi innan GSÍ.

Eins og áður segir geta atvinnukylfingar tekið þátt og má búast við því að allir sterkustu kylfingar landsins taki þátt á þessu móti.

Sértækar staðarreglur verða á þessu móti vegna Covid-19

Skor ÍSAM heimslistamótsins verður uppfært hér.

Leikfyrirkomulag

Höggleikur í flokki karla og kvenna, alls 54 holur. Leiknar eru 36 holur fyrri mótsdag og 18 holur seinni mótsdag. Keppt skal samkvæmt móta- og keppendareglum GSÍ.

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða birtir á golf.is eftir kl.17:00 á fimmtudeginum fyrir mót. Á fyrsta keppnisdegi raðar mótsstjórn í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori. Á fyrsta hring verður ræst út frá kl. 7:30, annan hring kl. 12:50 og seinasta hring frá kl. 13:00. Ath. að þessir tímar eru til viðmiðunar og geta breyst.

Þátttökuréttur

Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 39. Þátttökurétt hafa atvinnu og áhugamenn. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í golfklúbbi innan GSÍ. Ef skráningar eru fleiri en hámarksfjöldinn falla niður skráningar þeirra leikmanna sem næstir eru forgjafarmörkum síns kyns. Þó skulu að lágmarki níu leikmenn eiga rétt á þátttöku af hvoru kyni. Ef tveir eða fleiri kylfingar eru jafnlangt frá forgjafarmörkum síns kyns ræður hlutkesti því hverjir fá þátttökurétt. Ef fjöldi kylfinga sem fá þátttökurétt af hvoru kyni er ekki heilt margfeldi af þremur er hámarksfjöldi leikmanna aukinn svo að þrír keppendur verði í hverjum ráshópi.

Karlar leika af hvítum teigum og konur af bláum teigum.

Þátttökugjald er 8.000 kr.

Skráning og þátttökugjald

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir kl. 23:59 á miðvikudegi fyrir mót. **Engar undantekningar á skráningu verða leyfðar í mótið eftir að skráningu lýkur.** Þátttökugjöld verða ekki endurgreidd ef afboðun kemur eftir að skráningarfresti lýkur. Forföll skal tilkynna með tölvupósti á netfangið golfmos@golfmos.is

Æfingahringur

Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að panta rástíma. Reglur um æfingahringi er að finna í klúbbhúsinu. Skilyrði fyrir æfingahring er að búið sé að greiða þátttökugjald.

Keppendur fá æfingabolta fyrir hring án endurgjalds á mótsdögum.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun frá ÍSAM fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla og kvenna.

Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani, en að öðru leyti gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast verðlaun jafnt milli þeirra keppenda. Gert er ráð fyrir að verðlaunaafhending hefjist 15 mínútum eftir að síðasti ráshópur lýkur leik.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ