Photo by Arnaldur Halldórsson / 2019 Warner Bros. Entertainment Inc.
Auglýsing

Á morgun, miðvikudaginn 13. maí, mun Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur og brautryðjandi í íslensku kvennagolfi, sýna okkur hinum hvernig dagur í sínu lífi er með því að taka yfir story á Instagrami ÍSÍ. 

Instagram ÍSÍ má sjá hér.

Ólafía er fyrsti kylfingurinn frá Íslandi til að ná inn á sterkustu atvinnumótaröð veraldar í kvennaflokki (LPGA).

Hún spilaði á mótaröðinni árin 2017, 2018 og 2019. Besti árangur hennar var 4. sæti á Indy Women in Tech Championship. Árangur Ólafíu á heimslista atvinnukylfinga er sá besti í sögunni hjá íslenskum kylfingi. Hún náði að komast í sæti nr. 179 á árinu 2017. Einnig er hún eini Íslendingurinn sem hefur keppt á öllum fimm risamótunum í golfi í kvennaflokki.

Ólafía varð Íslandsmeistari í holukeppni 2011 og 2013 og Íslandsmeistari í höggleik 2011, 2014 og 2016.

Á Íslandsmótinu 2016 skrifaði hún nýjan kafla í golfsöguna með því að vera á besta samanlagða skorinu af öllum keppendum Íslandsmótsins, á -11 samtals.

Árið 2018 var golflandsliðið valið „Lið ársins“ af Samtökum íþróttafréttamanna. Ásamt Ólafíu voru í liðinu Valdís Þóra Jónsdóttir, Axel Bóasson og Birgir Leifur Hafþórsson. Landsliðið fagnaði sigri á meistaramóti Evrópu í blandaðri liðakeppni sem fram fór í Skotlandi 2018.

Fylgstu með degi í lífi Ólafíu á Instagrami ÍSÍ.

Instagram ÍSÍ má sjá hér.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ