/

Deildu:

Auglýsing

Laust er til umsóknar starf móta- og kynningarstjóra Golfsambands Íslands. Starfsmaðurinn mun starfa á skrifstofu sambandsins í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, móta-, markaðs- og kynningarnefnd GSÍ og munu helstu verkefni starfsmannsins liggja á þeim sviðum. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf 1. mars 2020. 

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Yfirumsjón með golfmótum GSÍ. Skipulagning, framkvæmd og frágangur í samstarfi við mótanefnd GSÍ og golfklúbba.
  • Skipulagning á markaðs- og kynningarstarfi GSÍ.
  • Önnur tilfallandi verkefni 

Hæfniskröfur

  • Reynsla og þekking af sambærilegum störfum.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Þjónustulund, sveigjanleiki, sjálfstæði og jákvæðni.

Starfshlutfall er 100%

Umsókn, ásamt ferilsskrá og kynningarbréfi, þarf að berast til GSÍ eigi síðar en 31. janúar 2020 á netfangið brynjar@golf.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Frekari upplýsingar um starfið veitir:

Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri GSÍ

brynjar@golf.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ