Golfklúbburinn Keilir hélt í gær móttöku fyrir Óliver Elí Björnsson í tilefni af sögulegum sigri hans á Opna breska áhugamannamóti pilta.
Stappfullt var í klúbbhúsinu þegar Óliver Elí mætti og var honum fagnað innilega. Meðal gesta var stjórnarfólk GSÍ og bæjarstjóri Hafnarfjarðar, ásamt stjórnendum Golfklúbbsins Keilis, fjölskyldu, vinum og félögum Ólivers.
Óliver Elí varð fyrstur íslenskra kylfinga til að vinna mótið, sem er eitt sterkasta og virtasta unglingamót heims. Hann komst áfram úr höggleikshluta mótsins og vann sex leiki í útsláttarhlutanum. Á leið sinni í úrslitin sýndi hann mikla seiglu, meðal annars þegar hann setti niður um 13 metra langt pútt á átjándu holu til að knýja fram bráðabana í 16 manna úrslitum.









Í 36 holu úrslitaleiknum mætti Óliver Elí Svíanum Ludwig Libera. Leikurinn var jafn allan tímann og þurfti bráðabana til að knýja fram úrslit. Óliver hafði betur á 37. holu og tryggði sér þar með sögulegan sigur.
Framundan er annað stórt verkefni, en Óliver Elí hefur verið valinn í lið meginlands Evrópu fyrir Jacques Léglise Trophy. Þar mætast níu af bestu kylfingum Evrópu 18 ára og yngri, og leika gegn úrvalsliði Bretlands og Írlands. Mótið fer fram dagana 21.-22. ágúst á The Island Golf Club á Írlandi. Óliver verður annar Íslendingurinn til að leika í mótinu, á eftir Gísla Sveinbergssyni árið 2015.




