GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Mikið áhorf mældist á útsendingar RÚV frá Íslandsmótinu í golfi 2026, sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst.

Uppsafnað áhorf yfir þrjá útsendingardaga mældist 18,3% og náðu útsendingarnar til tæplega 50 þúsund áhorfenda á aldrinum 12-80 ára.

Áhorfið jókst um 26% frá Íslandsmótinu 2025, þegar uppsafnað áhorf mældist 14,5%. Fjöldi áhorfenda jókst jafnframt úr rúmlega 38 þúsund í um 49 þúsund.

Áhorf á Íslandsmótið hefur nú rúmlega tvöfaldast frá árinu 2021, þegar 23.850 manns fylgdust með mótinu.

ÁrVöllurUppsafnað áhorfÁhorfendur
2026Korpúlfsstaðavöllur18,3%49.000
2025Hvaleyrarvöllur14,5%38.425
2024Hólmsvöllur í Leiru10,7%28.355
2023Urriðavöllur11,0%29.150
2022Vestmannaeyjavöllur9,8%25.970
2021Jaðarsvöllur9,0%23.850

Áhorfið jókst jafnt og þétt eftir því sem leið á mótið. Um 17 þúsund manns horfðu á útsendinguna á föstudeginum, 26 þúsund á laugardeginum og 36 þúsund á sunnudeginum.

Karlar horfðu aðeins meira en konur. Uppsafnað áhorf meðal karla mældist 19,4%, eða um 26 þúsund áhorfendur, samanborið við 17,3% og um 23 þúsund áhorfendur meðal kvenna.

Á höfuðborgarsvæðinu mældist uppsafnað áhorf 19%, en 17,1% á landsbyggðinni.

Mikill áhugi á heimasíðu mótsins

Nýr skor- og upplýsingavefur Íslandsmótsins fékk einnig frábærar viðtökur. Alls heimsóttu 22.370 notendur skorvefinn á keppnisdögunum fjórum og um 10 þúsund virkir notendur fylgdust þar með mótinu daglega.

Samanlagt voru síðuflettingarnar 553.163 og meðalheimsóknin var rúmar tólf mínútur. Mikill áhugi var á mótinu, bæði í beinni útsendingu RÚV og meðal þeirra sem fylgdust með stöðunni í rauntíma á netinu.

Hér má nálgast heimasíðu mótsins og alla tölfræði.

Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóðu uppi sem Íslandsmeistarar í golfi annað árið í röð. Metnaðarfull umgjörð mótsins, umfangsmikil útsending RÚV og frammistaða keppenda skiluðu sér í mesta áhorfi sem mælst hefur á Íslandsmótinu undanfarin ár.

Banner for Íslandsmót í golfi: event title, dates 6.–9. ágúst 2026, sponsor logos on left, shield/logo on right.
Skemmtileg tölfræði úr mótinu var aðgengileg á síðunni

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ