Íþróttahreyfingin og covid
Auglýsing

Heilbrigðisráðherra hefur gefið út reglugerð þar sem að slakað hefur verið á reglum um sóttkví vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar og munu reglurnar nú vera í aðalatriðum eftirfarandi: 

  • Einstaklingum sem eru útsettir fyrir COVID-19 smiti utan heimilis verður ekki lengur skylt að fara í sóttkví en þurfa þess í stað að viðhafa smitgát.
  • Í smitgát skal viðkomandi bera grímu í margmenni og þegar ekki er hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni. Forðast skal mannmarga staði og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga.
  • ​Börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát í þessum tilfellum en þurfa að vera í sóttkví ef smit er á heimili.
  • Sóttkví verður áfram skylda fyrir þá sem eru útsettir fyrir smiti innan heimilis en þríbólusettir sem útsettir eru á heimili geta verið í smitgát sem lýkur með sýnatöku.
  • Börn á leik- og grunnskólaaldri verða undanþegin smitgát. 
  • Skilyrði sóttkvíar verða óbreytt, þ.e. aðskilnaður frá öðrum í fimm daga og PCR-próf til að losna.
  • Ef ekki er viðhafður fullur aðskilnaður frá smituðum á heimili lýkur sóttkví með PCR-prófi degi eftir að sá smitaði útskrifast, eins og verið hefur.

Aðrar reglur um samkomutakmarkanir gilda áfram og helstu atriði er varða íþróttahreyfinguna eru eftirfarandi: 

  • Almennar takmarkanir eru 10 manns 
  • Fjöldatakmarkanir á æfingum og í keppnum er 50 manns í hverju rými
  • Áhorfendur eru bannaðir

Áfram eru allir hvattir til þess að gæta vel að persónubundnum sóttvörnum og halda áfram að fylgja öllum reglum um samkomutakmarkanir og sóttvarnir.

Hér á vef heilbrigðisráðuneytisins má lesa nánar um breytingu á reglum um sóttkví

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ