/

Deildu:

Kjartan Pálsson.
Auglýsing

Kjartan L Pálsson hélt upp á 75 ára afmæli sitt þann 6. október s.l. á Alicante Husa golfvellinum þar sem hann starfar sem fararstjóri. Ítarlegt viðtal er í nýjasta tölublaði Golf á Íslandi við hinn þaulreynda fararstjóra.  Í tilefni dagsins var haldið afmælisgolfmót og kom Kjartan með áletraða verðlaunagripi með sér frá Íslandi fyrir þetta mót en á þeim stóð „KLP 75 Spánn 2014“. Kjartan starfar sem fararstjóri fyrir „heldri kylfinga“ á vegum Úrvals/Útsýnar, en við Husa golfhótelið í Alicante er bráðskemmtilegur völlur sem er hannaður af hinum eina sanna Seve Ballesteros.

Afmælismót KLP tókst vel en alls tóku 42 „mörlandar“ þátt eins og Kjartan orðar það sjálfur. „Það var mikið fjör og kátína eins og gerist ávallt í kringum íslenska kylfinga,“ segir Kjartan. Það voru kylfingar frá Vestmannaeyjum sem sigruðu í bæði karla- og kvennaflokki á þessu 18 holu punktamóti sem fram fór við bestu aðstæður; logni, sól og 25 stiga hita.

Kjartan segir að ástandið á „KLP“ á þessum tímamótum sé bara fjandi gott. „Mér fannst ég ekkert vera neitt eldri eftir afmælisdaginn. Ég hef verið að berjast við krabbamein í lunga en ég var skorin fyrir tveimur árum og helmingur af lunganu var tekið. Ég er orðinn góður af því en það er eins og læknarnir hafi skorið eitthvað af „golfbakteríunni“ í leiðinni. Áhugi minn á golfinu sem leik hefur minnkað enda tók í skurðinn þegar ég lék golf lengi eftir aðgerðina. Ég varð að breyta sveiflunni og sú nýja passar ekki nógu vel og það gengur hægt að finna gömlu sveifluna aftur. Það mun koma til baka og næsta takmark er að spila hring á „aldri“ mínum. Möguleikarnir á því ættu að aukast þegar árunum fjölgar en ég þarf að vera duglegri að spila og æfa mig til þess að ná því.“

Kjartan er einn af frumkvöðlunum í golfferðaþjónustu á Íslandi og hefur starfað sem fararstjóri í þrjá áratugi. „Ég var farþegi í fyrstu skipulögðum golferðunum frá Íslandi. Þær voru til North Berwick í Skotlandi og þessar ferðir opnuðu augu margra fyrir ýmsum nýjum hlutum sem hægt var að taka með heim. Ég var síðan fararstjóri í golfferðum til Írlands, Spánar, Flórída og Tælands og þetta er búið að standa yfir í 30 ár,“ segir Kjartan en hann bætir því við að margt hafi breyst á þessum tíma.

Hefur ekki hugmyndum hve golfferðirnar eru margar

„Þetta er allt önnur veröld að vinna í þessu núna en hér áður fyrr. Í fyrstu ferðunum var maður „redda“ rástímum út um allt tveimur dögum áður, og það greiddu allir sjálfir fyrir teigtímana. Ferðalagið var í leigubílum og allt frekar laust í reipunum. Í dag er þetta allt skipulagt með lengri fyrirvara og allt innifalið í „pakkanum“. Það eru allir að reyna að gera betur og betur og þannig verður upplifun farþegar skemmtilegri,“ segir Kjartan en hann hefur ekki hugmynd um í hve margar golfferðir hann hefur farið – en þær eru margar.“

Eftirminnilegasta ferðin hjá Kjartani var til Mallorca á Spáni þegar hann fagnaði fimmtugsafmæli sínu fyrir 25 árum.

Skipti út regngallanum fyrir fleiri bjóra

„Ég var að vinna hjá Samvinnuferðum – Landsýn á þeim tíma sem almennur fararstjóri. Helgi Jóhannsson, þáverandi forstjóri félagsins, auglýsti vikugolfferð til Santa Ponsa á Mallorca og ferðin seldist upp á hálfum degi. Ég vissi ekkert af þessari ferð fyrr en rétt áður en farþegarnir komu. Í þessari ferð var mikið og skrautlegt lið sem fyllti flugvélina. Ég þekkti ekki alla sem komu úr vélinni en margir af þeim urðu miklir vinir mínir og eru enn. Hér á Husa Golf í Alicante eru 4-5 sem voru í þessari afmælisferð fyrir 25 árum. Margir voru að fara í sína fyrstu utanlandsferð í golfi og þarna urðu ógleymanlegar uppákomur. Við erum enn að hlæja af sumu sem þarna gerðist. Ég var t.d. minntur á eina sögu í afmælinu núna sem gerðist í þessari ferð. Þá kom einn félaginn til mín á öðrum degi í golfmótinu sem var haldið og spurði mig grafalvarlegur hvort hann mætti taka regngallann sinn úr golfpokanum. Ég hélt það nú enda glampandi sól og engin rigning í vændum næstu dagana. Þegar ég spurði nánar út í málið fékk ég þetta svar. „Sko, ef ég tek regngallann úr pokanum, þá kem ég miklu fleiri bjórum fyrir í honum.“

Kjartan segir að hann verð viðloðandi fararstjórn áfram á meðan einhver not verði fyrir hann eftir öll þessi ár. Þó ég segi sjálfur frá þá finnst mér það bara vera afrek að vera enn þátttakandi í þessu eftir öll þessi ár.

Kjartan kynntist golfíþróttinni í kringum árið 1970 þegar hann var á kynningarmóti fyrir íþróttafréttamenn úti á Nesvelli. Á þeim tíma var golfíþróttinni aldrei gerð nein skil á síðum dagblaða en Kjartan vann á þeim tíma á dagblaðinu Tímanum. „Ég smitaðist mjög alvarlega og illa af golfbakteríunni á þessum tíma og flæktist í svo í allt sem viðkom golfinu á Íslandi. Landsliðseinvaldur í mörg ár, formaður Einherjaklúbbsins í 34 ár og stjórnaði Nesklúbbnum í mörg ár, svo eitthvað sé nefnt, ég man þetta ekki allt lengur,“ segir Kjartan L. Pálsson.

Sex draumahögg og tveir Albatrossar

Kjartan var um tíma sá íslenski kylfingur sem oftast hefur farið holu í höggi. Hann hefur afrekað það sex sinnum – og hann lét af formennskunni í Einherjaklúbbnum þegar Björgvin Þorsteinsson náði metinu af honum með sjöunda draumahöggi sínu. Kjartan hefur einnig náð því tvívegis að leika par 5 holu á 2 höggum sem kallast Albatross. „Í fyrra skiptið var það á velli í Frakklandi og ég setti annað höggið ofaní af um 120 metra færi. Upphafshöggið rúllaði endalaust niður brekku og ég hafði heppnina með mér. Í síðara skiptið var ég staddur á Írlandi og þar sló ég annað höggið í stein eða eitthvað álíka því hollið á undan okkur fann boltann ofan í holunni,” segir Kjartan.

Verðlaunahafar á afmælismóti KLP 2014

Konur:

1. Katrín Magnúsdóttir, GV 36 punktar.

2. Hólmfríður Þórhallsdóttir, GKj 35 punktar.

3. Bergdís Kristjánsdóttir, GR 34 punktar.

Karlar:

1. Kristján Ólafsson, GV 34 punktar.

2. Sigurgeir Steingrímsson, NK 32 punktar.

3. Einar B. Gunnlaugsson, GR 32 punktar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ