Sigurður Arnar Garðarsson, Hlynur Bergsson og Aron Snær Júlíusson.
Auglýsing

Sigurður Arnar Garðarsson, Hlynur Bergsson og Aron Snær Júlíusson hófu leik í dag á Stora Hotellet Fjällbacka Open sem fram fer á Fjällbacka vellinum í Svíþjóð dagana 16.-18. maí.

Mótið er hluti af Nordic Golf League sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu. 

Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit í þessu móti.   

Smelltu hér fyrir stigalistann á Nordic Golf League 2024:

Aron Bergsson er einnig á meðal keppenda. Aron hefur keppt undir merkjum GKG á Íslandi en hann er búsettur í Svíþjóð og keppir fyrir Hills golfklúbbinn þar í landi. Hann er bróðir Andreu Bergsdóttur sem hefur verið að gera það gott í bandaríska háskólagolfinu að undanförnu.

Það er að miklu að keppa á Nordic Golf League. Þeir keppendur sem ná að sigra á þremur mótum á tímabilinu fá keppnisrétt á Challenge Tour – Áskorendamótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki. Fimm efstu sætin á stigalistanum gefa einnig keppnisrétt á Challenge Tour á næsta tímabili – en heildarfjöldi kylfinga sem fá keppnisrétt á Challenge mótaröðinni er 5.

Haraldur Franklín Magnús, Axel Bóasson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson hafa allir farið þessa leið til þess að öðlast keppnisrétt á Challenge Tour. 

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ