Auglýsing

Atvinnukylfingurinn, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, úr Golfklúbbnum Keili endaði í 11. sæti í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2020. Það eru Samtök íþróttafréttamanna sem standa að þessu kjöri. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GR, endaði í 16. sæti í þessu kjöri.

Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrnukona, fékk fullt hús í kjörinu og er því Íþróttamaður ársins 2020. Þetta er í annað sinn sem Sara er efst í þessu kjöri og er hún fyrsta konan sem fær þessa viðurkenningu í annað sinn

Alls fengu 25 íþróttamenn atkvæði í kjörinu í ár. Þar af voru 15 karlar en 10 konur.

Íþróttafólk frá níu mismunandi sérsamböndum innan ÍSÍ fengu stig í kjörinu í ár. Stigin í kjörinu má sjá sundurliðuð í réttri röð hér fyrir neðan.

30 félagar eru í Samtökum íþróttafréttamanna þetta árið og tóku þeir allir þátt í kjörinu.

Átta þeirra vinna fyrir Sýn, sjö þeirra hjá RÚV, fimm hjá Morgunblaðinu, þrír hjá Fotbolta.net, tveir hjá Fréttablaðinu, einn hjá 433.is, einn hjá Handbolta.is, einn hjá Viaplay, einn hjá Símanum og einn hjá Kylfingi.is.

Hver íþróttafréttamaður setur tíu nöfn íþróttafólks á blað. Sá sem settur er í efsta sæti fær 20 stig, 2. sætið gefur 15 stig, 3. sætið 10 stig, 4. sætið 7 stig, 5. sætið 6 stig, 6. sætið 5 stig, 7. sætið 4 stig, 8. sætið 3 stig, 9. sætið 2 stig og 10. sætið á hverjum atkvæðaseðli gefur 1 stig. Í kjörinu á liði og þjálfara ársins eru sett þrjú nöfn á blað. Efsta sætið gefur 5 stig, 2. sætið 3 stig og 3. sætið 1 stig.

Íþróttamaður ársins 2020

1. Sara Björk Gunnarsdóttir, fótbolti – 600
2. Martin Hermannsson, körfubolti – 356
3. Aron Pálmarsson, handbolti – 266
4. Anton Sveinn McKee, sund – 209
5. Bjarki Már Elísson, handbolti – 155
6. Glódís Perla Viggósdóttir, fótbolti – 126
7. Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttir – 106
8. Ingibjörg Sigurðardóttir, fótbolti – 84
9. Gylfi Þór Sigurðsson, fótbolti – 74
10. Tryggvi Snær Hlinason, körfubolti – 66

11. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, golf – 47
12. Júlían J.K. Jóhannsson, kraftlyftingar – 23
13. Hilmar Örn Jónsson, frjálsíþróttir – 15
14. Alfons Samsted, fótbolti – 10
15. Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttir – 8
16. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf – 7
      Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut – 7
18. Berglind Björg Þorvaldsdóttir, fótbolti – 6
19. Ísak Bergmann Jóhannesson fótbolti – 5
       Hlynur Andrésson, frjálsíþróttir – 5
       Steinunn Björnsdóttir, handbolti – 5
22. Vigdís Jónsdóttir, frjálsíþróttir – 4
       Sveindís Jane Jónsdóttir, fótbolti – 4
24. Hilmar Snær Örvarsson, íþróttum fatlaðra – 1
       Aron Einar Gunnarsson, fótbolti – 1

Þjálfari ársins

1. Elísabet Gunnarsdóttir, fótbolti – 133
2. Arnar Þór Viðarsson, fótbolti – 55
3. Heimir Guðjónsson, fótbolti – 23*
4. Þorsteinn Halldórsson, fótbolti – 23
5. Þórir Hergeirsson, handbolti – 20
6. Guðrún Ósk Ámundadóttir, körfubolti – 14
7. Jón Þór Hauksson, fótbolti – 6
8. Stefán Arnarson, fótbolti – 1

*Heimir var í 1. sæti á fleiri atkvæðaseðlum en Þorsteinn. Heimir var því á topp 3 listanum, skv. reglum kjörsins.

Lið ársins

1. Kvennalandslið Íslands í fótbolta – 148
2. 21 árs landslið Íslands í fótbolta – 84
3. Kvennalið Breiðabliks í fótbolta – 14
4. Kvennalið Fram í handbolta – 9
5. Kvennalið Skallagríms í körfubolta – 7
     Karlalið Vals í fótbolta – 7
7.    Karlalandslið Íslands í handbolta – 1

Eftirtaldir kylfingar hafa verið á topp 10 listanum í kjörinu á Íþróttamanni ársins og í sviganum er sætið sem kylfingurinn endaði í.

1963: Magnús Guðmundsson (10.)
1965: Magnús Guðmundsson (7.)
1977: Björgvin Þorsteinsson (9.)
1979: Hannes Eyvindsson (8.)
1981: Ragnar Ólafsson (6.)
1984: Ragnar Ólafsson (9).
1985: Sigurður Pétursson (3.)
1986: Úlfar Jónsson (9.)
1987: Úlfar Jónsson (2.-10.)
1988: Úlfar Jónsson (5.)
1990: Úlfar Jónsson (4.)
1992: Úlfar Jónsson (5.)
1993: Úlfar Jónsson (5.) Þorsteinn Hallgrímsson (8.)
1996: Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
1997: Birgir Leifur Hafþórsson (6.)
1998: Ragnhildur Sigurðardóttir (9.)
2000: Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
2001: Birgir Leifur Hafþórsson (6.)
2002: Ólöf María Jónsdóttir (9.)
2003: Ragnhildur Sigurðardóttir (9.)
2004: Ólöf María Jónsdóttir (4.), Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
2005. Ólöf María Jónsdóttir (8.)
2006: Birgir Leifur Hafþórsson (4.)
2007: Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
2011: Ólafur Björn Loftsson (10.)
2016: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (3.)
2017: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (1.), Valdís Þóra Jónsdóttir (9).
2018: Haraldur Franklín Magnús (7.)
2019: Guðmundur Ágúst Kristjánsson (9.)

(1) Magnús Guðmundsson (2), (2) Björgvin Þorsteinsson, (3) Hannes Eyvindsson, (4) Ragnar Ólafsson (2), (5) Sigurður Pétursson, (6) Úlfar Jónsson (6), (7) Þorsteinn Hallgrímsson, (7) Birgir Leifur Hafþórsson (7), (8) Ragnhildur Sigurðardóttir (2), (9) Ólöf María Jónsdóttir (3), (10) Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (3), (11) Valdís Þóra Jónsdóttir (1), (12) Haraldur Franklín Magnús (1), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (1).

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ