Auglýsing

Evrópumót stúlknalandsliða 2022 verður sett með formlegum hætti mánudaginn 4. júlí á Urriðavelli. Þetta er í annað sinn sem Evrópska golfsambandið, EGA, heldur slíkt mót á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. EM kvennalandsliða fór fram á Íslandi árið 2016 og tókst framkvæmd mótsins mjög vel á þeim tíma.

Framundan eru spennandi golfdagar þar sem að bestu kylfingar Evrópu, 18 ára og yngri, í stúlknaflokki mæta til leiks. Alls eru 18 þjóðir sem taka þátt – og heildarfjöldi keppenda er 108 en 6 leikmenn skipa hvert lið. Með þjálfurum og fylgdarliði má gera ráð fyrir að heildarfjöldi gesta á mótinu sé á bilinu 160-180.

EGA og Golfsamband Íslands eru framkvæmdaraðilar mótsins í samvinnu við GO.

Keppni hefst þriðjudaginn 5. júlí og mótinu lýkur laugardaginn 9. júlí. Þorvaldur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Odds, segir að fjölmennur hópur sjálfboðaliða standi þétt við bakið á framkvæmdaraðilum mótsins – og það sé ánægjulegt að finna fyrir góðum stuðningi félagsmanna og golfhreyfingarinnar á landsvísu.

„Það þarf margar hendur til þess að gera Evrópumót stúlknalandsliða að einstökum og eftirminnilegum viðburði. Við leituðum til okkar frábæru félagsmanna og óskuðum eftir sjálfboðaliðum. Græni sjálfboðaliðaherinn okkar frá árinu 2016 svaraði kallinu með glæsibrag og voru viðbrögðin framar vonum. Rúmlega 80 félagsmenn eru klárir að standa vaktina með okkur en án þeirra væri ekki hægt að halda slíkt mót. Sjálfboðaliðarnir fá fjölbreytt verkefni, úti á golfvellinum og í og við golfskálann. Við gerum ráð fyrir að hver sjálfboðaliði taki í það minnsta eina vakt, sem eru fjórar klst.,“ segir Þorvaldur og bætir því við að allir sjálfboðaliðarnir fá ZO-ON fatnað til minningar um aðstoð þeirra í mótinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ