Auglýsing

Ragnhildur Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir hafa lokið keppni á lokaúrtökumótinu fyrir LET Evrópumótaröðina 2024

Á lokaúrtökumótinu sem fram fer dagana 16.-20. desember er keppt á á Al Maaden og Royal Golf völlunum í Marrakech. Þar keppa 156 leikmenn um keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni á næsta tímabili.

Guðrún Brá lék á 298 höggum (+8) á fyrstu fjórum keppnisdögunum (77-75-73-73) og endaði hún í 104. sæti. Ragnhildur lék á 304 höggum (+14) (76-76-77-75) og endaði hún í 130. sæti.

Þær komust ekki í gegnum niðurskurðinn eftir fjórða hringinn sem var +1 samtals.

Guðrún Brá og Ragnhildur eru með keppnisrétt á LET Access atvinnumótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.

Ragnhildur og Guðrún Brá fóru báðar í gegnum 1. stig úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina – sem fram fór í Marókkó í þessari viku. Þar tóku 220 keppendur þátt.

Guðrún Brá hefur verið með keppnisrétt á LET Evrópumótaröð atvinnukylfinga undanfarin þrjú ár en þrefaldi Íslandsmeistarinn í golfi náði ekki að halda keppnisrétti sínum á síðasta tímabili. Keiliskonan lék á lokaúrtökumótinu í fyrra og endaði þar í 42. sæti sem gaf henni takmarkaðan keppnisrétt á LET á síðasta tímabili.

Ragnhildur Kristinsdóttir, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, var með keppnisrétt á LET Access atvinnumótaröðinni á síðasta tímabili en mótaröðin er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í kvennaflokki. GR-ingurinn tók þátt í fyrsta sinn í fyrra á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina. Þar endaði hún í 81. sæti sem gaf henni keppnisrétt á LET Access atvinnumótaröðinni á síðasta tímabili.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ