Ragnhildur Kristinsdóttir, GR á 14. teig í Vestmannaeyjum. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, hefur leik í dag á úrtökumóti fyrir LPGA atvinnumótaröðina í Bandaríkjunum. Alls eru 311 keppendur sem hefja leik á 1. stigi úrtökumótsins. Keppnin fer fram á þremur völlum á Rancho Mirage golfsvæðinu í Kaliforníu.

Alls eru þrjú stig á úrtökumótunum fyrir LPGA. Eftir þriðja keppnisdag, 54 holur, er niðurskurður og má gera ráð fyrir að um 130 keppendur komist í gegnum niðurskurðinn.

Ekki liggur fyrir hversu margir keppendur af 1. stiginu komast inn á 2. stigið.

Nánari upplýsingar um úrtökumót LPGA.

Smelltu hér fyrir rástíma, skor og úrslit.

Ragnhildur er að taka þátt á úrtökumótinu í fyrsta sinn. Hún hefur á undanförnum árum stundað nám í Kentucky í Bandaríkjunum – samhliða því að keppa í golfi með skólaliðinu. Hún hefur leik kl. 18:20 að íslenskum tíma í dag.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, náði frábærunum árangri í nóvember árið 2016 þegar hún komst í gegnum öll þrjú stig úrtökumótsins fyrir LPGA – og tryggði sér keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð veraldar í kvennaflokki.

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, á 10. teig á Vestmannaeyjavelli. Mynd/seth@golf.is
Ragnhildur Kristinsdóttir á 1. teig á Vestmannaeyjavelli. Mynd/seth@golf.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ