Auglýsing

Sex íslenskir keppendur eru á meðal þátttakenda á Opna breska áhugamannamótinu sem fer nú fram í 126. skipti. Að þessu sinni fer mótið fram á The Nairn – vellinum sem er í Skotland en mótið fer fram dagana 14.-19. júní. 

Mótið er eitt það allra stærsta hjá áhugakylfingum í heiminum og aðeins allra bestu áhugakylfingarnir komast inn í mótið. Vegna Covid-19 er keppendahópurinn að mestu skipaður leikmönnum frá Bretlandseyjum 

Fyrstu tvo keppnisdagana af alls sex er keppt í höggleik þar sem að 144 keppendur keppa um 64 efstu sætin sem tryggja sæti í holukeppninni sem tekur við af höggleiknum. 

Staða, rástímar og ýmislegt annað:

Sigurvegarinn fær keppnisrétt á þremur risamótum á atvinnumótaröð karla, Opna mótinu (The Open), Opna bandaríska meistaramótinu (US Open) og venjan hefur verið að sigurvegarinn fái einnig boð um að keppa á Mastersmótinu á Augusta vellinum. 

Í holukeppninni eru leiknar 18 holur i hverri umferð en úrslitaleikurinn er 36 holur. 

Í mótinu í ár verður sú nýbreytni að þeir keppendur sem komast í undanúrslit fá boð um að taka þátt á móti á Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour) sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu. 

Keppt var í fyrsta sinn á Opna áhugamannamótinu árið 1885 á Hoylake vellinum. Á meðal þekktra sigurvegara má nefna  Bobby Jones, Sergio Garcia og José María Olazábal. 

Eins og áður segir eru íslensku keppendurnir sex, og koma þrír þeirra úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, tveir eru frá Golfklúbbi Reykjavíkur og einn úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar. 

Íslensku keppendurnir eru:

Nafn KlúbburStaða á heimslista
Aron Snær JúlíussonGKG 271
Dagbjartur SigurbrandssonGR561
Hákon Örn MagnússonGR619
Kristófer Karl KarlssonGM836
Hlynur BergssonGKG864
Sigurður Arnar GarðarssonGKG1077

Flestir keppendur eru frá Englandi á þessu móti eða 70 alls, Skotar koma þar á eftir með 37 keppendur. Alls eru leikmenn frá 10 þjóðum og er Ísland í fimmta sæti hvað varðar fjölda keppenda á þessu móti.   

England70
Skotland37
Írland16
Wales9
Ísland6
Ástralía2
Noregur1
Sviss1
Jórdanía1
Svíþjóð1

Aron Snær Júlíusson, GKG. Mynd/seth@golf.is.
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR. Mynd/seth@golf.is.
Hákon Örn Magnússon, GR. Mynd/seth@golf.is
Hlynur Bergsson, GKG. Mynd/seth@golf.is.
Kristófer Karl Karlsson, GM. Mynd/seth@golf.is.
Sigurður Arnar Garðarsson, GKG. Mynd/seth@golf.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ