Krakkar í golfi. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna endurgreiðslna til eininga innan vébanda ÍSÍ á vef Vinnumálastofnunar en stofnuninni var falið af hálfu félags- og barnamálaráðherra að sjá um framkvæmd laga nr. 155/2020 um greiðslur vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍSÍ.

Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um endurgreiðslur til íþróttafélaga.

Með lögunum er stuðlað að því að íþróttafélög og sambönd sem starfa innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands geti hafið óbreytta starfsemi að nýju eftir að þeim var gert að fella niður starfsemi á tilteknu tímabili, að hluta eða jafnvel öllu leyti vegna opinberra sóttvarnararráðstafanna. Markmiðið með þessari lagasetningu er að sem minnstar raskanir verði á íþróttastarfi á Íslandi til lengri tíma litið vegna faraldursins.

Lögin taka til greiðslna vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna hjá​íþróttafélögum og öðrum samböndum sem starfa innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem hófu starfsemi fyrir 1. október 2020 og þurftu að fella niður starfsemi tímabundið, að hluta eða öllu leyti, vegna opinberra sóttvarnarráðstafana á tímabilinu 1. október 2020 til og með 30. júní 2021. 

Umsóknir um greiðslur skulu berast Vinnumálastofnun fyrir 30. september 2021. Eftir þá dagsetningu fellur réttur til greiðslu niður.​

Vinnumálastofnun og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands tóku höndum saman og hafa unnið í sameiningu að mótun verklags varðandi umsóknarferlið með það að leiðarljósi að einfalda umsýslu og ferlið í heild sinni.

ÍSÍ hvetur alla sambandsaðila sína og íþrótta- og ungmennafélög til að kynna sér skilyrði umsókna varðandi ofangreindar endurgreiðslur og nýta sér úrræðið til hlítar.

Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um endurgreiðslur til íþróttafélaga.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ