Leirumótið
Séð yfir 9. flötin á Hólmsvelli í Leiru.
Auglýsing

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Leirumótið – sem haldið er í samstarfi við Golfbúðina og Courtyard by Marriott.

Leirumótið fer fram dagana 4.-6. júní 2021 og er það hluti af stigamótaröð GSÍ og það þriðja á keppnistímabilinu. Golfklúbbur Suðurnesja er framkvæmdaraðili mótsins sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru.

Smelltu hér til að skrá þig.

Mótið er eins og áður segir hluti af stigamótaröð GSÍ en framundan er skemmtileg keppni hjá kylfingum að tryggja sér keppnisrétt á fyrsta Íslandsmóti tímabilsins, Íslandsmótinu í holukeppni – sem fram fer í Þorlákshöfn um miðjan júní 2021. Smelltu á myndina hér fyrir neðan til að skoða stöðuna á stigalistunum.

Leirumótið

Leikfyrirkomulag

Höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi, 18 holur á sunnudegi. Niðurskurður verður eftir annan hring en þá komast áfram 70%  keppenda úr hvorum flokki. Ef keppendur eru jafnir í neðstu sætum ofan niðurskurðarlínu skulu þeir báðir/allir halda áfram. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót karla og kvenna og móta – og keppendareglum GSÍ.

Rástímar og ráshópar    

Rástímar verða birtir á golf.is eftir kl 22:00 á miðvikudeginum fyrir mót. Á fyrsta keppnisdegi ákveður mótsstjórn röðun í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori.

Þátttökuréttur 

Hámarksfjöldi kylfinga í Leirumótið er 144. Þáttökurétt hafa bæði áhugamenn og atvinnumenn. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5. Ef fjöldi skráðra leikmanna fer yfir hámarksfjölda ræður forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur því hverjir komast inn í hvorn flokk, þ.e.a.s. þeir kylfingar sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki. Þó skulu að lágmarki 25% af hámarksfjölda keppenda fá þátttökurétt í hvorum flokki, að teknu tilliti til stærðar ráshópa. Ef hámarksfjöldi keppenda er t.d. 90 skulu að lágmarki 24 keppendur fá þátttökurétt í hvorum flokki. Standi val á milli keppenda með forgjöf jafnlangt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða.

Mótsgjald 

Karlaflokkur.
Hvítir teigar   
8000 kr.                                     
Kvennaflokkur.       
Bláir teigar   
8000 kr.

Skráning og þátttökugjald

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 23:59 á þriðjudegi fyrir mót.
** Engar undantekningar verða leyfðar eftir að skráningu lýkur.
** Þátttökugjöld verða ekki endurgreidd ef afboðun berst eftir að skráningarfresti lýkur.

Æfingahringur  

Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að panta rástíma í klúbbhúsinu. Skilyrði fyrir æfingahring er að búið sé að greiða þátttökugjald. Keppendur fá æfingabolta fyrir hring án endurgjalds á mótsdögum.

Verðlaun  

​Veitt verða verðlaun (gjafakort) fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla og kvenna.                                                                                       

Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru leyti gilda móta- og keppendareglur GSÍ.   Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra. 

Dómari: Halldór Einir Smárason

Mótsstjóri: Andrea Ásgrímsdóttir

Mótsstjórn:  Andrea Ásgrímsdóttir,  John S. Berry, Jón Guðnason, Ólöf Kristín Sveinsdóttir,  Örn Ævar Hjartarson, Sigurpáll Sveinsson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ