Auglýsing

Fyrsta mót tímabilsins á stigamótaröð GSÍ 2023, Leirumótið, fer fram á Hólmsvelli í Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja dagana 2.-4. júní 2023.

Mótið átti að vera annað mót tímabilsins en þar sem að fyrsta mótið sem fram átti að fara á Garðavelli á Akranesi 19.-21. maí var fellt niður þá er þetta mót það fyrsta í röðinni.

Golfklúbbur Suðurnesja er framkvæmdaraðili mótsins og gildir mótið til stiga á heimslista áhugakylfinga. Þátttökurétt hafa bæði áhugamenn og atvinnumenn. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í viðurkenndum golfklúbbi.

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 23:59 þriðjudaginn 30. maí 2023.  Engar undantekningar verða leyfðar eftir að skráningu lýkur.

Opið er fyrir skráningu – smelltu hér.

Leikfyrirkomulag

Höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Niðurskurður verður eftir annan hring en þá komast áfram 70% af fjölda keppenda úr hvorum flokki. Ef keppendur eru jafnir í neðstu sætum ofan niðurskurðarlínu skulu þeir báðir/allir halda áfram. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót karla og kvenna og móta- og keppendareglum GSÍ.

Rástímar og ráshópar    

Rástímar verða birtir á golf.is eftir kl. 22:00 á miðvikudeginum fyrir mót (mögulega fyrr en kylfingar fá tilkynningu þess efnis í Golfboxi). Á fyrsta keppnisdegi ákveður mótsstjórn röðun í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori. Ræst verður út alla dagana frá kl. 8:00

Þátttökuréttur 

Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 144.

Þáttökurétt hafa bæði áhugamenn og atvinnumenn. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í viðurkenndum golfklúbbi.

Ef fjöldi skráðra leikmanna fer yfir hámarksfjölda ræður forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur því hverjir komast inn í hvorn flokk, þ.e.a.s. þeir kylfingar sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki. Þó skulu að lágmarki 25% af hámarksfjölda keppenda fá þátttökurétt í hvorum flokki, að teknu tilliti til stærðar ráshópa.  Standi val á milli keppenda með forgjöf jafnlangt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða.

Mótsgjald 

Karlaflokkur.           
Hvítir teigar   9.000 kr.                                   
Kvennaflokkur.       
Bláir teigar    9.000 kr.

Skráning og þátttökugjald

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 23:59 á þriðjudegi fyrir mót. ** Engar undantekningar verða leyfðar eftir að skráningu lýkur.** Þátttökugjöld verða ekki endurgreidd ef afboðun berst eftir að skráningarfresti lýkur.

 Æfingahringur  

Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að panta rástíma í klúbbhúsinu. Skilyrði fyrir æfingahring er að búið sé að greiða þátttökugjald. Keppendur fá æfingabolta fyrir hring án endurgjalds á mótsdögum.

Verðlaun  

​Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla og kvenna.       

1. verðlaun: 

2. verðlaun: 

3. verðlaun:                                                      

Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru leyti gilda móta- og keppendareglur GSÍ.   Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra. 

Gert er ráð fyrir að verðlaunaafhending hefjist 20 mínútum eftir að síðasti ráshópur lýkur leik.       

Dómari: Halldór Einir Smárason, s: 893-3227

Mótsstjóri: Sverrir Auðunsson, s: 862 2573

Mótsstjórn: Örn Ævar Hjartarson, Sigurpáll Geir Sveinsson, Kristján Björgvinsson og Sara Guðmundsdóttir.

Keppnisskilmálar.

Úrdráttur:
Skor er fært inn rafrænt af leikmönnum og skulu kylfingar koma inn að loknum hring í skorherbergi og staðfesta skor. Ræst er af fyrsta teig eingöngu.  

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ