Site icon Golfsamband Íslands

Öldungamótaröðinni á Hólmsvelli aflýst vegna veðurs

Leirumótið

Séð yfir 9. flötin á Hólmsvelli í Leiru.

Tilkynning frá mótsstjórn Öldungamótaraðarinnar á Hólmsvelli í Leiru:

Ágætu þátttakendur í fyrsta móti á Öldungamótaröðinni. Mótastjórn og vallarnefnd hefur ákveðið að fresta Öldungamótinu sem á að fara fram á morgun 27.maí. Ástæða fyrir frestuninni er sú að völlurinn er mjög blautur eftir rigningar í nótt og mun ekki þorna fyrir morgundaginn og er það mat okkar að völlurinn verði óleikhæfur á morgun.

Fyrirhugað er halda þetta mót 9.júní nk,

Þeir kylfingar sem höfðu skráð sig og greitt mótsgjald munu fá bakfærslu næstkomandi mánudag, eins mun ný dagsetning um mótið vera tilkynnt á mánudag.

Exit mobile version