Ólafía Þórunn Kristinsdóttir á Pure Silke LPGA mótinu á Bahamas. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék á pari vallar, 72 höggum, á öðrum keppnisdeginum á Bank of Hope Founders meistaramótinu sem hófst í gær á LPGA mótaröðinni. Slæmur lokakafli gerði út um vonir Ólafíu um að komast í gegnum niðurskurðinn. Hún fékk þrjá skolla á fjórum síðustu holunum.

Ólafía byrjaði með glæsibrag á fyrsta hringnum sem hún lék á 69 höggum eða þremur höggum undir pari vallar, -3. Hún er í 46. sæti en efstu kylfingarnir eru á -7.

Íslandsmeistarinn er í sannkölluðum „stjörnuráshóp“ fyrstu tvo keppnisdagana  Þar leikur atvinnukylfingurinn úr GR leika með Cheyenne Woods og Michelle Wie en þær eru báðar frá Bandaríkjunum.

Staðan á mótinu: 

Fylgst er með gangi mála á Twittersíðu GSÍ:


 

Ólafía hóf leik á 10. teig. Hún fékk sex pör í röð og fékk síðan örn -2 á 7. brautinni sem er par 4 hola. Hún tapaði einu höggi í dag á 9. braut og fékk síðan tvo fugla á síðari 9 holunum. Það eru margir keppendur sem eiga eftir að ljúka leik í dag en Ólafía er sem stendur á meðal 20 efstu. Michelle Wie, sem er með Ólafíu í ráshóp, er efst eins og er á -7 samtals en hún lék frábært golf.



Ólafía hóf leik kl. 14:33 að íslenskum tíma og hóf ráshópurinn leik á 10. teig á fimmtudaginn.

Mótið fer fram í Phoenix og er gríðarlega sterkt en níu af tíu efstu kylfingum heimslistans.


Hér má sjá rástímana á fyrstu tveimur keppnisdögunum:

Woods er skólafélagi Ólafíu frá Wake Forest háskólaliðinu í Bandaríkjunum og eru þær góðar vinkonur. Þær léku saman fyrstu tvo keppnisdagana á Pure Silk mótinu á Bahamas sem var fyrsta mót ársins á LPGA mótaröðinni. Ólafía dvelur heima hjá Woods sem er búsett í Phoenix. Þær hafa leikið nokkra æfingahringi saman á vellinum sem er að sögn Ólafíu glæsilegur í alla staði. Flatirnar eru harðar og boltinn stoppar ekki svo auðveldlega á flötunum þegar vippað er inn á þær.

Michelle Wie er ein þekktast golfkona allra tíma. Hún er 27 ára gömul og sigraði á sínu fyrsta risamóti árið 2014 á Opna bandaríska meistaramótinu. Wie er einna þekktust fyrir að hafa leikið á PGA mótaröðinni í karlaflokki árið 2004 en þá var hún aðeins 14 ára gömul.

Hún náði að komast í 6. sæti á heimslistanum árið 2014 en hún hefur hrapað niður í 173. sæti frá þeim tíma. Mótið hjá Wie í Phoenix verður 240. mót hennar á LPGA mótaröðinni en það þriðja hjá Ólafíu.

Aðstoðarmaður Ólafíu á þessu móti verður þaulreyndur kylfuberi sem heitir Zac en hann er frá Hawaii. Hann hefur verið aðstoðarmaður hjá reyndum kylfingum á borð við Carolin Masson frá Þýskalandi og systranna frá Taílandi, Ariya Jutanugarn og Moriya Jutanugarn.

Sei Young Kim frá Suður-Kóreu hefur titil að verja á Sigur Kim í fyrra var fjórði sigur hennar á sterkustu atvinnumótaröð heims. Kim setti mótsmet í fyrra þegar hún lék lokahringinn á 10 höggum undir pari eða 62 höggum og samtals var hún 5 höggum betri en Lydia Ko frá Nýja-Sjálandi.

Ólafía lék á Pure Silk mótinu á Bahamas í lok janúar og þar endaði hún í 69. sæti á sínu fyrsta mót og komst í gegnum niðurskurðinn.

Á ISPS-Handa mótinu í Ástralíu endaði Ólafía í 30. sæti og var m.a. tveimur höggum betri en Lydia Ko á því móti.

Það er óhætt að segja að Kim hafi sett ný viðmið á mótinu í fyrra. Hún jafnaði LPGA met í hlutfalli við par vallar með því að leika á -27. Þar með jafnaði hún met sem hin sænska Annika Sörenstam átti frá árinu 2001.

Heildarverðlaunafé: 165 milljónir kr.

Keppnisfyrirkomulag: 72 holur – fjórir keppnisdagar og niðurskurður eftir 36 holur.

Heildarlengd keppnisvallar: 6,100 metrar.

Mótið fer fram á Wildfire Golf Club/ JW Marriott Phoenix Desert Ridge Resort & Spa í Phoenix Arizona.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ