/

Deildu:

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Mynd/let.
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er úr leik á Thornberry Creek LPGA mótinu í Oneida Wisconsins í Bandaríkjunum.

Íþróttamaður ársins 2017 lék fyrstu tvo hringina á -3 samtals en það dugði ekki til að komast í gegnum niðurskurðinn.

Ólafía lék þrjár síðust holurnar á -2 samtals á öðrum hringnum en það dugði ekki til Hún hóf leik á 10. teig á öðrum keppnisdegi þar sem hún lék á pari vallar eða 72 höggum – en á fyrsta hringnum lék hún á -3 eða 69 höggum.

Ólafía var á meðal þeirra fyrstu sem hófu leik á 1. keppnishringnum. Ragnar Már Garðarsson, afrekskylfingur úr GKG, er aðstoðarmaður hennar í þessu móti líkt og á undanförnum mótum.

Mótið er það 15. á keppnistímabilinu hjá Ólafíu. Hún hefur komist í gegnum niðurskurðinn á fjórum þeirra. Ólafía Þórunn er í 128. sæti CME listans fyrir þetta mót.

Staðan:

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ