Auglýsing

Starfsmenn Golfklúbbsins Odds eru þessa dagana að leggja lokahönd á nýja inniæfingaðstöðu í Miðhrauni 2 í Garðabæ. Búið er að koma upp æfingapúttflötinni sem var til staðar í fyrri æfingaaðstöðu í Kauptúni og einnig verður hægt að slá bolta í net. Frá þessu er greint á heimasíðu Odds.

Æfingaaðstaðan mun opna næstkomandi föstudag og hefjast þá æfingar hjá keppnishópum GO.

Æfingatímar eru eftirfarandi:
Mánudagar – 18:00
Miðvikudagar – 18:00
Föstudagar – 17:00
Aðrir tímar verða kynntir síðar.

Ekki er búið að koma upp golfhermum sem voru í Kauptúni en verið er að kanna hvort hægt sé að koma þeim fyrir í þessari nýju aðstöðu. Opnunartími inniaðstöðunar verður kynntur sérstaklega síðar en við hvetjum félagsmenn og kylfinga til vera duglegir að nýta sér aðstöðuna í vetur og vor til að bæta golfsveifluna og lækka um leið forgjöfina.

Upplýsingar um golfkennslu GO má finna hér.

Screenshot (12)

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ