/

Deildu:

Efri röð frá vinstri: Sunna Víðisdóttir, Signý Arnórsdóttir, Anna Sólveig Snorradóttir, neðri röð frá vinstri: Ragnhildur Kristinsdóttir, Berglind Björnsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd/Helga
Auglýsing

Íslenska kvennalandsliðið í golfi tapaði naumlega, 3-2, gegn ríkjandi Evrópumeistaraliði Frakka á Evrópumóti áhugamanna sem fram fer á Urriðavelli. Ísland enda í B-riðli eftir höggleikskeppnina og eftir viðureignina í dag gegn Frökkum er ljóst að Ísland getur ekki endað ofar en í 13. sæti. Ísland mætir liði Belgíu á morgun, föstudag, og sigurliðið úr þeirri viðureign leikur um sæti 13.-14., en tapliðið leikur um sæti 15.-16. 

Anna Sólveig Snorradóttir og Berglind Björnsdóttir töpuðu 4/3 í fjórmenningsleiknum en þar leika tveir leikmenn samana í liði og slá einum bolta til skiptis.

Signý Arnórsdóttir vann sína viðureign 2/0 og Guðrún Brá Björgvinsdóttir gerði það einnig en mótherji hennar forfallaðist og gaf viðureignina.

Ragnhildur Kristinsdóttir tapaði 4/3 og Sunna Víðisdóttir tapaði naumlega á 21. holu í gríðarlega spennandi viðureign.   

Staðan í B-riðli og úrslit leikja

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ