Metaðsókn var í síðustu viku á golf.is samkvæmt vefmælingu fyrir viku 32 (05.08-11.08.2019).
Íslandsmótið í golfi 2019 vakti mikla athygli lesenda ásamt daglegri notkun kylfinga á mínum síðum á mitt.golf.is.
Notendur voru alls 34.686 í síðustu viku og er það 16,1% aukning á milli vikna.
Fréttavefurinn golf.is var með 27.961 notendur sem er 24,5% aukning á milli vikna og mitt.golf.is var með 27.444 notendur sem er aðeins minni aðsókn en í síðustu viku.
Íslandsmótið 2019: Skor, rástímar og staða [Golfsamband Íslands] var mest lesna fréttin í síðustu viku hjá öllum þeim vefsíðum sem eru í vikulegri mælingu hjá Modernus.
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-08-12-at-5.25.56-PM-1024x555.png)
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-08-12-at-5.13.49-PM-1024x739.png)
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-08-12-at-5.18.38-PM-1024x772.png)
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/mittgolfis-1068x740-1024x710-1.jpeg)