Golfsamband Íslands

Markús Marelsson endaði í öðru sæti á Evrópumeistaramóti unglinga

Evrópumeistaramót 16 ára og yngri 2023, European Young Masters, fór fram á Sedin vellinum í Slóvakíu 27.-29. júlí.

Fjórir íslenskir kylfingar tóku þátt. Markús Marelsson, GK, Guðjón Frans Halldórsson, GKG, Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM og Auður Bergrún Snorradóttir, GM.

Keppnisfyrirkomulag mótsins var höggleikur – leiknir eru þrír 18 holu hringir á þremur keppnisdögum. Keppt var í stúlkna – og piltaflokki.

Smelltu hér fyrir úrslit mótsins:

Markús gerði sér lítið fyrir og endaði í öðru sæti í piltaflokki 16 ára og yngri. Hann lék á 214 höggum (71-71-72) (-5 samtals). Ben Bolton frá Englandi lék best allra á -11 samtals. Frábær árangur hjá Markúsi. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, sigraði í stúlknaflokki á þessu móti í fyrra.

Guðjón Frans Halldórsson, GKG, lék á 231 höggi (78-77-76) (+12 samtals), hann endaði í 32. sæti.

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, lék á 232 höggum (79-79-74) (+13 samtals), hún endaði í 34. sæti.

Auður Bergrún Snorradóttir, GM, lék á 232 höggum (79-73-80) (+13 samtals), hún endaði í 34. sæti.

Samhliða fór fram liðakeppni þar sem að þrjú bestu skorin á hverjum keppnishring töldu. Ísland endaði í 13. sæti af alls 28. liðum.

Efri röð frá vinstri Markús Marelsson Guðjón Frans Halldórsson Alexandra Eir Grétarsdóttir liðsstjóri og sjúkraþjálfari Neðri röð frá vinstri Pamela Ósk Hjaltadóttir Auður Bergrún Snorradóttir
Markús Marelsson
Exit mobile version