Auglýsing

Fimmta mót tímabilsins á Áskorendamótaröðinni fer fram á Bakkakotsvelli sunnudaginn 22. ágúst 2021. Mótið er jafnframt lokamót tímabilsins.

Smelltu hér til að skrá þig:

„Það er gaman í golfi“

Leikfyrirkomulag mótaraðarinnar er eftir alþjóðlegri fyrirmynd mótaraðar fyrir ungra kylfinga. Þessi mótaröð er hugsuð sem fyrstu skref og stuðningur við keppnisþátttöku ungra kylfinga.

Markmiðið er að hafa gaman og aðaláherslan lögð á að læra leikinn og mismunandi leikform hans. Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar eru hvattir til þess að taka virkan þátt í að gera þessi mót sem skemmtilegust fyrir þátttakendur með leiðbeinandi og jákvæðu hugarfari í kringum mótin.

Helstu atriði sem lagt verður upp með:

● Ræst verður út frá kl. 8:00

● Kylfuberar eru leyfðir, Sjá almennar reglur um kylfubera.

● Höggleiks afbrigði: eftir 9 högg er skylda að taka upp og skrifa 10 högg.

● Fallreitur skal vera flatarmegin þegar slegið er yfir vítasvæði.

● Ef bolti týnist er lausnin eins og um vítasvæði væri að ræða. Eitt högg í víti þar sem boltinn fór inn í runna eða þ.h. og leikið áfram.

● Mótið er ekki stigamót

● Þeim kylfingum sem kjósa að leika til forgjafar er heimilt að flytja sig upp um flokk.

● Þeir kylfingar sem leika í flokki 10 ára og yngri leika ekki til forgjafar.
Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum bæði hjá stelpum og strákum:

● 10 ára og yngri – 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar – gull teigar

● 12 ára og yngri – 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar – rauðir teigar

● 14 ára og yngri – 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar – rauðir teigar

● 15-18 ára – 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar – rauðir teigar

Skráning og þátttökugjald

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl.12:00 á föstudeginum fyrir mótið. Afskráning skal berast tímanlega á netfang golfklúbbsins golfmos@golfmos.is sem heldur mótið.

Þátttökugjald er 2.000,- kr. Hámarksfjöldi í mótið er 108 keppendur sem deilist jafnt niður á flokka.

Athugið að þeir kylfingar sem leika á Íslandsmóti unglinga og komast ekki í gegnum niðurskurð eiga kost á að skrá sig í sér flokk í mótinu á laugardag og þurfa því ekki að skrá sig í þetta mót í GolfBox. Frekari upplýsingar berast þeim keppendum á laugardagskvöld.

Rástímar og ráshópar
Rástímar verða kynntir fyrir mótið en ræst er út frá kl. 8:00 (eða öðrum tíma sem mótsstjórn kynnir) á mótsdegi. Forráðamenn eru beðnir um að fylgjast með tölvupósti og með mótinu í GolfBox.


Æfingahringur
Einn æfingahringur er innfalinn í mótsgjaldi en keppnisvöllurinn verður opinn fyrir æfingahring fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi áður en mótið hefst. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til þess að panta rástíma. Athugið að greiða þarf þátttökugjald áður en æfingahringur er leikinn.


Verðlaun og verðlaunaafhending
Allir keppendur mótsins fá viðurkenningarskjal að leik loknum en einnig verða aukaverðlaun veitt fyrir 1. – 3. sæti í báðum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast verðlaun jafnt á milli þeirra keppenda. Verðlaunaafhending fer fram um leið og leik lýkur í hverjum flokki.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Með fyrirvara um breytingar

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ