/

Deildu:

Logi Sigurðsson og Gunnlaugur Árni Sveinsson.
Auglýsing

Logi Sigurðsson, GS, og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG taka þátt á einu sterkasta áhugamannamóti veraldar, St Andrews Links Trophy, sem fram fer í Skotlandi.

Leikið er á hinum sögufræga Old Course á St. Andrews og einnig á New Course. Mótið fór fyrst fram árið 1989 og er eins og áður segir eitt af sterkustu áhugamannamótum veraldar í karlaflokki.

Alls eru 144 kylfingar sem hefja keppni föstudaginn 7. júní en þá verður leikið á New Course. Laugardaginn 8. júní verður leikið á Old Course. Niðurskurður er eftir 2. keppnisdag og komast 40 efstu áfram. Á lokadeginum, sunnudaginn 9. júní, verða leiknar 36 holur á Old Course.

Margir þekktir kylfingar hafa sigrað á þessu móti og má þar nefna; Ernie Els, Lee Westwood, Trevor Immelman, Geoff Ogilvy, Padraig Harrington, Justin Rose, Rory McIlroy og Francesco Molinari.

Smelltu hér fyrir stöðuna í mótinu.

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ