/

Deildu:

Auglýsing

Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, hefur tilkynnt hvaða leikmenn skipa landslið Íslands í karla-, kvenna-, pilta- og stúlknaflokki á Evrópumótunum í liðakeppni 2023. 

Kvenna- og stúlknaliðin eru í efstu deild en karla- og piltalandsliðið eru í næstefstu deild. Landslið Íslands eru skipuð leikmönnum sem eru áhugakylfingar. 

Ólafur hefur jafnframt tilkynnt hvaða leikmenn verða fulltrúar Íslands á European Young Masters.

Karla- og piltalið Íslands: 

Karla- og piltalið Íslands keppa á Green Resort Hrubá Borša vellinum í Slóvakíu 12.-15. júlí.

Þjálfarar liðanna eru Birgir Leifur Hafþórsson og Þorsteinn Hallgrímsson. Baldur Gunnbjörnsson er sjúkraþjálfari liðanna.

Eftirtaldir leikmenn skipa karlalið Íslands: 

  • Birgir Björn Magnússon, GK
  • Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
  • Hlynur Bergsson, GKG
  • Kristján Þór Einarsson, GM
  • Kristófer Karl Karlsson, GM
  • Kristófer Orri Þórðarson, GKG

Eftirtaldir leikmenn skipa piltalið Íslands: 

  • Guðjón Frans Halldórsson, GKG
  • Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
  • Hjalti Jóhannsson, GK
  • Markús Marelsson, GK
  • Skúli Gunnar Ágústsson, GA
  • Veigar Heiðarsson, GA

Nánari upplýsingar um karlamótið má nálgast hér:

Nánari upplýsingar um piltamótið má nálgast hér:

Alls eru 9 þjóðir sem keppa á EM karla: Austurríki, Ísland, Portúgal, Pólland, Skotland, Slóvakía, Tékkland, Tyrkland og Ungverjaland.

Alls eru 11 þjóðir sem keppa á EM pilta: Eistland, Grikkland, Ísland, Lettland, Lúxemborg, Portúgal, Pólland, Skotland, Tyrkland og Wales.

3 efstu þjóðirnar vinna sér inn sæti í efstu deild í hvoru móti

Kvennalið Íslands: 

Kvennalið Íslands keppir á Tawast Golf & Country Club í Finnlandi 11.-15. júlí.
Þjálfari liðsins er Ólafur Björn Loftsson og Árný Lilja Árnadóttir er sjúkraþjálfari liðsins. 

Eftirtaldir leikmenn skipa kvennalið Íslands: 

  • Andrea Bergsdóttir, Hills GC
  • Anna Júlía Ólafsdóttir, GKG 
  • Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS
  • Hulda Clara Gestsdóttir, GKG
  • Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
  • Saga Traustadóttir, GKG

Nánari upplýsingar um mótið má nálgast hér: 

Alls eru 19 þjóðir sem keppa á EM kvenna: Austurríki, Belgía, Danmörk, England, Finnland, Frakkland, Ísland, Írland, Ítalía, Skotland, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tékkland, Tyrkland, Wales og Þýskaland. 

Stúlknalið Íslands:

Stúlknalið Íslands keppir á Golf Club d’Hossegor í Frakklandi dagana 11.-15. júlí.
Dagur Ebenezersson er þjálfari og Ása Dagný Gunnarsdóttir er sjúkraþjálfari liðsins. 

Eftirtaldir leikmenn skipa stúlknalandslið Íslands:

  • Berglind Erla Baldursdóttir, GM
  • Eva Kristinsdóttir, GM
  • Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS
  • Helga Signý Pálsdóttir, GR
  • Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM
  • Sara Kristinsdóttir, GM

Nánari upplýsingar um mótið má nálgast hér: 

Alls eru 16 þjóðir sem taka þátt á EM stúlknalandsliða. Austurríki, Belgía, Danmörk, England, Frakkland, Ísland, Írland, Ítalía, Holland, Pólland Skotland, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tékkland og Þýskaland. 

European Young Masters

Landslið Íslands 16 ára og yngri keppir á Sedin Golf Club í Slóvakíu dagana 27.-29. júlí.
Þjálfari og sjúkraþjálfari liðsins er Alexandra Eir Grétarsdóttir. 

Eftirtaldir leikmenn skipa landslið Íslands 16 ára og yngri:

  • Auður Bergrún Snorradóttir, GM
  • Guðjón Frans Halldórsson, GKG
  • Markús Marelsson, GK
  • Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM

Nánari upplýsingar um mótið má nálgast hér: 

Fjölmargar aðildarþjóðir EGA eru skráðar til leiks, alls 32 þjóðir.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ