Auglýsing

Kristjáni Þór Einarssyni úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er spáð stigameistaratitlinum á Eimskipsmótaröðinni í golfi karla 2016. Þetta kom fram í spá sérfræðinga sem golf.is fékk til þess að spá fyrir um hvaða fimm kylfingar myndu enda í fimm efstu sætunum í lok keppnistímabilsins. Kristján Þór fékk 42 stig en Haraldur Franklín Magnús úr GR varð annar.

Spáin var kynnt á fundi með fréttamönnum í dag á Urriðavelli þar sem að helstu breytingarnar á Eimskipsmótaröðin 2016 voru m.a. kynntar.

Fimm efstu í spá sérfræðinga golf.is í karlaflokki 2016.

  1. Kristján Þór Einarsson (42)
  2. Haraldur Franklín Magnús (38)
  3. Axel Bóasson (36)
  4. Gísli Sveinbergsson (33)
  5. Sigurþór Jónsson (28)Eimskipsmótaröðin hefst á föstudaginn á Strandarvelli á Hellu en hér fyrir neðan er keppnisdagskráin fyrir tímabilið 2016.

    Screen Shot 2016-05-18 at 6.36.44 PM

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ