Auglýsing

Ólafía Þórunn atvinnukylfingur er komin út á golfvöll eftir fæðingarorlof og hefur KPMG endurnýjað samning sinn við hana. KPMG hefur verið einn aðal stuðningsaðili Ólafíu Þórunnar síðastliðin ár og er það í takt við stefnu félagsins á alþjóða vettvangi að styðja við afrekskylfinga í golfi.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafíu Þórunni og KPMG.

Ólafía Þórunn er nú við æfingar í Þýskalandi og dvelur hún þar ásamt eiginmanni og syni. Hún mun ferðast þaðan til að taka þátt í mótum í Evrópu.

Um næstu helgi, 27.-29. maí tekur við hennar annað mót á þessu sumri en það er Mithra Ladies Open sem fram fer á Naxhelet golfvellinum í Belgíu. 

Jón S. Helgason, framkvæmdastjóri KPMG

„Við hjá KPMG erum stolt af því samstarfi sem við höfum átt með Ólafíu Þórunni undanfarin fimm ár. Nú er hún komin út á keppnisvöllinn aftur eftir fæðingarorlof og það verður spennandi að sjá hana í keppnum sumarsins. Við óskum henni góðs gengis í sumar.“

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir:

„Ég er þakklát KPMG fyrir að hafa áframhaldandi trú á mér til að sýna hvað í mér býr úti á golfvellinum. Stuðningur KPMG gerir mér kleift að halda áfram að keppa í golfi og næstu misseri er það verkefnið – að ferðast á golfmót með Maroni og Thomasi. Markmið mitt er alltaf að standa mig vel, gera sjálfa mig og alla sem standa mér nærri stolta.”

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ