/

Deildu:

Axel Bóasson, GK og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Korpubikarinn í samvinnu við First Water fór fram á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur dagana 31. maí – 2. júní. Mótið er fyrsta mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og voru leiknar 54 holur eða þrír keppnishringir á þremur dögum. 

Keppendahópurinn var gríðarlega sterkur, þar sem að fremstu atvinnukylfingar landsins voru á meðal keppenda – ásamt bestu áhugakylfingum Íslands.

Smelltu hér fyrir lokastöðuna í Korpubikarnum 2024

Smelltu hér fyrir myndasafn á myndavef GSÍ.

Smelltu hér fyrir myndasafn GR – Grímur Kolbeinsson.

Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR voru í nokkrum sérflokki í kvennaflokknum. Þær slitu sig frá öðrum keppendum og þegar uppi var staðið sigraði Guðrún Brá á 215 höggum eða einu höggi undir pari vallar samtals. Ragnhildur lék á 216 höggum eða pari vallar, en skor þeirra beggja var mjög gott miðað við að veðuraðstæður voru mjög krefjandi, á fyrsta og þriðja keppnisdegi. Pamel Ósk Hjaltadóttir, GM, varð þriðja á 231 höggi eða 10 höggum yfir pari samtals.

Í karlaflokki var keppnin mjög spennandi allt fram á lokaholuna hjá lokaráshóp. Axel Bóasson, GK varði titilinn frá því í fyrra með því að leika á pari vallar samtals eða 213 höggum. Andri Þór Björnsson, GR, og Aron Snær Júlíusson, GKG, voru jafnir í 2.-3. sæti á 214 höggum eða einu höggi yfir pari vallar. Þar á eftir komu þeir Dagbjartur Sigurbrandsson, GR og Haraldur Franklín Magnús, GR, á 2145 höggum eða +2. Aron Emil Gunnarsson, GOS, og Axel Bóasson voru jafnir á pari samtals þegar þeir komu á 18. teiginn á lokakeppnisdeginum. Aron Emil týndi upphafshögginu og lék holuna á +3 – sem gerði það að verkum að hann varð í fimmta sæti, en Aron Emil átti besta hring mótsins á öðrum keppnisdegi, 64 högg.

<strong>Frá vinstri Eggert Kristjánsson framkvæmdastjóri First Water Pamela Ósk Guðrún Brá Ragnhildur og Gísli Guðni Hall formaður GR Myndsethgolfis <strong>
<strong>Frá vinstri Eggert Kristjánsson framkvæmdastjóri First Water Aron Snær Axel Andri Þór og Gísli Guðni Hall formaður GR Myndsethgolfis <strong>
<strong>Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir bæði úr GK sigruðu í Korpubikarnum 2024 Myndsethgolfis <strong>

Í karlaflokki voru 66 keppendur. Þar var meðalforgjöf keppenda +1.3, lægsta forgjöfin var +6 og hæsta forgjöfin var 1.3. Í karlaflokki voru 43 keppendur með 0 eða lægra í forgjöf. Meðaldur keppenda í karlaflokki var tæplega 27 ár, elstu keppendurnir voru 55 ára og sá yngsti var 15 ára. 

Atvinnukylfingarnir Haraldur Franklín Magnús og Axel Bóasson voru á meðal keppenda – en þeir hafa leikið á Challenge Tour á þessu tímabili, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu. Axel hafði titil að verja á þessu móti en hann er þrefaldur Íslandsmeistari í golfi. Haraldur Franklín hefur einnig sigrað á Íslandsmótinu í golfi. Logi Sigurðsson, ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, var á meðal keppenda og Kristján Þór Einarsson, sem sigrað hefur tvívegis á Íslandsmótinu tók einnig þátt. 

Í kvennaflokki voru atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir á meðal keppenda. Þær hafa báðar leikið á LET Access atvinnumótaröðinni á þessu ári, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í kvennaflokki í Evrópu. Ragnhildur er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi en Guðrún Brá hefur þrívegis fagnað þeim titli.   Meðalforgjöfin í kvennaflokki var 0.2 en alls voru 21 leikmenn í kvennaflokki. Meðalaldurinn var 21 ár, þrír keppendur voru 15 ára og elsti leikmaðurinn var 32 ára.

Keppendur voru alls 87, og komu þeir frá 11 klúbbum víðsvegar af landinu.

GR var með flesta keppendur eða 29 alls, GKG og GM voru báðir með 12 keppendur og GK var með 10. Sjö klúbbar voru með keppendur í kvenna -og karlaflokki.

KlúbburKonurKarlarSamtals
1GA134
2GFB011
3GK3710
4GKG3912
5GM5712
6GOS167
7GR72229
8GS145
9GSE011
10GV022
11NK044
NafnKlúbburForgjöfAldur
Guðrún Brá BjörgvinsdóttirGK+5.330
Ragnhildur KristinsdóttirGR+527
Heiðrún Anna HlynsdóttirGOS+2.224
Saga TraustadóttirGR+1.926
Pamela Ósk HjaltadóttirGM+1.216
Andrea Ýr ÁsmundsdóttirGA+1.222
Berglind BjörnsdóttirGR+0.932
Anna Júlía ÓlafsdóttirGKG+0.924
Auður Bergrún SnorradóttirGM+0.817
Elsa Maren SteinarsdóttirGK0.119
Berglind Erla BaldursdóttirGM0.219
Sara KristinsdóttirGM0.519
Helga Signý PálsdóttirGR118
Fjóla Margrét ViðarsdóttirGS1.417
Karen Lind StefánsdóttirGKG2.318
Heiða Rakel RafnsdóttirGM2.518
Bryndís María RagnarsdóttirGK2.729
Þóra Sigríður SveinsdóttirGR317
Erna Steina EysteinsdóttirGR3.315
Margrét Jóna EysteinsdóttirGR4.315
Eva Fanney MatthíasdóttirGKG4.615
NafnKlúbburForgjöfAldur
Axel BóassonGK+634
Logi SigurðurssonGS+4.822
Dagbjartur SigurbrandssonGR+4.822
Kristján Þór EinarssonGM+4.336
Haraldur Franklín MagnúsGR+3.833
Daníel Ísak SteinarssonGK+3.624
Kristófer Orri ÞórðarsonGKG+3.627
Sigurður Bjarki BlumensteinGR+3.423
Daníel Ingi SigurjónssonGV+3.424
Andri Þór BjörnssonGR+3.333
Aron Snær JúlíussonGKG+3.328
Aron Emil GunnarssonGOS+3.223
Jóhannes GuðmundssonGR+3.126
Böðvar Bragi PálssonGR+3.121
Birgir Björn MagnússonGK+2.727
Hákon Örn MagnússonGR+2.626
Tómas Eiríksson HjaltestedGR+2.522
Arnór Ingi FinnbjörnssonGR+2.435
Arnar Snær HákonarsonGR+1.935
Kristófer Karl KarlssonGM+1.923
Viktor Ingi EinarssonGR+1.824
Sverrir HaraldssonGM+1.824
Ragnar Már GarðarssonGKG+1.729
Sigurbergur SveinssonGV+1.537
Pétur Sigurdór PálssonGOS+1.422
Andri Már ÓskarssonGOS+1.433
Einar Bjarni HelgasonGSE+1.326
Hjalti Hlíðberg JónassonGKG+1.322
Sveinn Andri SigurpálssonGS+1.221
Björn Óskar GuðjónssonGM+1.127
Sigurbjörn ÞorgeirssonGFB+1.153
Arnór Tjörvi ÞórssonGR+1.122
Elvar Már KristinssonGR+124
Hjalti PálmasonGM+155
Breki Gunnarsson ArndalGKG+0.821
Jóhann Frank HalldórssonGR+0.820
Arnar Daði SvavarssonGKG+0.715
Guðmundur Rúnar HallgrímssonGS+0.549
Pétur Þór JaideeGS+0.535
Magnús Yngvi SigsteinssonGKG+0.522
Jón KarlssonGR+0.455
Ólafur Marel ÁrnasonNK+0.422
Björn Viktor ViktorssonGR+0.321
Skúli Gunnar ÁgústssonGK+0.318
Dagur Fannar ÓlafssonGR+0.120
Bjarni Freyr ValgeirssonGR0.123
Andri Már GuðmundssonGM0.223
Kjartan Óskar GuðmundssonNK0.223
Bjarki Snær HalldórssonGK0.222
Sigurþór JónssonGK0.243
Eyþór Hrafnar KetilssonGA0.228
Arnór Daði RafnssonGM0.222
Mikael Máni SigurðssonGA0.721
Tómas Hugi ÁsgeirssonGK0.820
Dagur Snær SigurðssonGR0.926
Páll Birkir ReynissonGR0.924
Óskar Páll ValssonGA0.920
Heiðar Snær BjarnasonGOS120
Máni Páll EiríkssonGOS123
Birkir Blær GíslasonNK1.121
Arnór Ingi HlíðdalGOS1.328
Karl Ottó OlsenGR1.320
Axel ÁsgeirssonGR1.334
Guðmundur Snær ElíassonGKG1.418
Heiðar Steinn GíslasonNK1.418
Óliver Máni SchevingGKG1.522

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ