/

Deildu:

Auglýsing

Konur, sem eru félagar í golfklúbbi á Íslandi, spila oftar golf en karlar sem eru einnig félagsmenn í golfklúbbi.

Þetta er ein af fjölmörgum áhugaverðum niðurstöðum úr þjónustukönnun Gallup sem birt var á golfþingi GSÍ í nóvember 2019.

Markmið rannsóknarinnar var að skoða viðhorf kylfinga til ýmissa þátta er varðar golfiðkun og þróun þar á.

  • Nær helmingur (49%) kvenna spilar þrisvar í viku eða oftar, sambærilegt hlutfall meðal karla er 41%.


  • Á móti kemur að karlar eru mun líklegri en konur til að spila 18 holu hring. Konur fara þá frekar 9 holur.

Um var að ræða netkönnun sem gerð var á tímabilinu 26. september – 13. nóvember 2019. Úrtakið var unnið úr félagaskrá, alls 5.746.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ