/

Deildu:

Auglýsing

Það styttist í golftímabilið hér á Íslandi og margir eru nú þegar byrjaðir að nýta sér golfvelli á SV-horni landsins.

Hér eru 12 ráð sem gott er að hafa í huga í upphafi tímabilsins.

Hér eru almennar ráðleggingar sem miðast við golfleik þegar hann getur hafist við hefðbundnar kringumstæður. Eftir samkomubann og þegar íþróttaæfingar verða leyfðar á ný vegna Covid-19 faraldursins.

  1. Æfðu stutta spilið

    Tilfinningin fyrir stutta spilinu í kringum flatirnar og á flötunum er oft „ryðguð” eftir vetrardvalann. Þetta á einnig við um þá sem hafa æft vel fyrir vetrartímann – því það er mikill munur á því að leika á náttúrulegu grasi og gervigrasi.

  2. Góður fatnaður

    Það styttist í sumarið en íslenska vorveðrið getur oft bitið í og verið blautt og kalt. Það er betra að klæða af sér kuldann með því að vera í mörgum þunnum flíkum í stað þess að klæðast þykkum fatnaði sem hindrar hreyfingarnar í golfsveiflunni.

  3. Leitaðu til PGA kennara (þegar það verður leyft á ný vegna Covid-19)

    Það er auðvelt að festast í fari sem erfitt er að komast upp úr. Fáðu PGA kennara til að fara yfir helstu grunnatriðin. Gripið, stöðuna, líkamsstöðu, boltastöðu, jafnvægi og miðið. Æfingarnar verða mun markvissari og skemmtilegri í kjölfarið. Þetta á jafnt við um þá sem eru með lága eða háa forgjöf.


  4. Mæling hjá fagmanni (þegar það verður leyft á ný vegna Covid-19 )

    Það getur borgað sig að fá fagmann til að mæla þann útbúnað sem þú ert með í notkun nú þegar – áður en fjárfest er í nýjum útbúnaði. Kylfurnar eiga að henta þeim líkamlegum eiginleikum sem þú býrð yfir, sveifluhraða, líkamsstyrk og öðrum þáttum sem skipta máli þegar kemur að vali á réttum útbúnaði.

  5. Góð tilboð

    Það eru alltaf góð tilboð í gangi hjá golfverslunum landsins og þá sérstaklega þegar nýjar kylfur eru kynntar til leiks. Það borgar sig að fylgjast vel með og landa hagstæðum tilboðum.

  6. Skynsemi

    Það þarf ekki alltaf að endurnýja allt settið. Fleygjárnin þarfnast endurnýjunar oftar en aðrar kylfur – og mikilvægt að þær séu ekki með slitnum höggfleti. Einnig er vert að skoða hvort það vanti kylfur til þess að fylla upp í göt í högglengdinni. Það getur oft breytt miklu að bæta einni kylfu í safnið.

  7. Fjölbreytt leikform

    Það getur oft breytt miklu að prófa nýtt leikform til þess að ná fram leikgleðinni og „hungrinu” í golfíþróttinni. Fjórbolti, Texas Scramble og holukeppni eru allt góðar leiðir til þess að brjóta upp hið hefðbundna mynstur í punktakeppni eða höggleik.

  8. golf.is

    Það er nauðsynlegt að fara yfir upplýsingarnar sem skráðar eru um þig á golf.is. Er forgjöfin rétt, heimilisfang, klúbbur?. Það er ekki góð upplifun að fara með ranga forgjöf eða vera skráður í rangan klúbb í fyrsta golfmóti ársins.

  9. Hlustaðu á líkamann

    Það eru margir vöðvar sem við notum í golfsveiflunni sem liggja í dvala yfir veturinn. Það er mikilvægt að meiðast ekki í upphafi tímabilsins og því nauðsynlegt að gera æfingar sem nýtast í golfsveiflunni. Samhæfing, jafnvægi og styrkur koma þar við sögu – leitaðu til fagaðila sem gefur þér góð ráð á þessu sviði.

  10.  Þolinmæði

    Það er nauðsynlegt að sætta sig við að getustigið er oft ekki í hámarki á vorin þegar fyrstu golfhringirnir eru leiknir. Njóttu þess að vera úti að slá á grasi, sjá boltann fljúga, og andaðu að þér ferska loftinu. Vallaraðstæður eiga einnig eftir að batna og það er því um að gera að njóta og sýna þolinmæði.

  11. Níu holur er valkostur

    Það er ekki alltaf nauðsynlegt að leika 18 holur. Margir golfklúbbar bjóða upp á 9 holu hringi – það tekur styttri tíma og er prýðisæfing. Það er góð lausn að leika golf í rúmlega 1 ½ klukkustund.

  12.  Settu þér markmið

    Það er nauðsynlegt að setja sér markmið til þess að bæta árangurinn í golfinu. Skráðu tölfræðina, hittar brautir, hittar flatir, fjölda pútta. Þar með færðu betri yfirsýn um veikleika og styrkleika í leik þínum. Það leiðir af sér að auðveldara er að setja upp markvissa æfingaáætlun til þess að ná enn lengra.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ