/

Deildu:

Björgvin Þorsteinsson, GA, á Íslandsmótinu í Vestmannaeyjum 2018. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Á Íslandsmótinu í golfi 2021 sem fram fer á Jaðarsvelli á Akureyri 5.-8. ágúst verður keppt í fyrsta sinn um Björgvinsskálina sem er veitt þeim áhugamanni sem leikur á lægsta skori í kvenna – eða karlaflokki á Íslandsmótinu í golfi ár hvert. 

Skálin er veitt til heiðurs Björgvini Þorsteinssyni en árið 2021 er liðin 50 ár frá því að Björgvin varð í fyrsta sinn Íslandsmeistari í golfi.

Björgvin er sexfaldur Íslandsmeistari en hann er næst sigursælasti kylfingur Íslandsmótsins í karlaflokki. 

Verðlaunagripinn hefur Björgvin Þorsteinsson ánafnað GSÍ en um er að ræða verðlaun sem Björgvin hlaut fyrir fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn árið 1971.

Eins og áður segir er Björgvin sexfaldur Íslandsmeistari en hann sigraði í fyrsta sinn árið 1971 og hann sigraði síðan fimm ár í röð á tímabilinu 1973-1977. Aðeins Birgir Leifur Hafþórsson hefur sigrað oftar í karlaflokki eða 7 sinnum. Birgir Leifur landaði sjöunda titlinum á Jaðarsvelli á Akureyri árið 2016. Úlfar Jónsson er einnig með sex Íslandsmeistaratitla líkt og Björgvin. 

Björgvin, sem er fæddur árið 1953, er á meðal keppenda á Íslandsmótinu í golfi 2021 á sínu 68. aldursári. Björgvin lék á 55 Íslandsmótum í röð en hann er mættur á ný á sitt 56. Íslandsmót eftir tveggja ára hlé. Björgvin er með 1,8 í forgjöf og er elsti keppandinn á Íslandsmótinu 2021 á gamla heimavellinum – Jaðarsvelli á Akureyri. 

Björgvin Þorsteinsson á hátindi ferilsins á miðjum áttunda áratugi síðustu aldar. Mynd/golfmyndir.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ