/

Deildu:

Guðmundur Árni, Kate Stillwell og Agnar. Mynd/GKG
Auglýsing

Kate Stillwell hefur verið ráðin vallarstjóri GKG. Kate hefur víðtæka reynslu í umsjón og uppbyggingu golfvalla. Nú síðustu árin hefur hún unnið að byggingu 18 holu golfvallar í London, The Inspiration Club. Þetta kemur fram í tilkynningu frá GKG.

Samhliða starfi sínu sem vallarstjóri hefur hún hefur unnið við að undirbúa fjölmarga golfvelli út um allan heim undir stórmót í golfi eins og t.d. Ladies European Tour í Marocco 2019, The French Open – Ryder Cup í París, Irish Open í K Club, Turkish Open árin 2015 til 2018, India Hero Open í Delí árin 2015 til 2019, PMW PGA championship í Wentworth 2014 til 2016.

Það má segja að Kate hafi grasvallarfræðin í genunum því faðir hennar, Richard Stillwell, var aðalgrasvallarsérfræðingur Evróputúrsins í 34 ár samfleytt. Þá eru báðir bræður Kate vallarstjórar.

Ráðning Kate er liður í þeirri vegferð GKG að fjölga menntuðum grasvallarsérfræðingum í klúbbnum, Guðmundur Árni Gunnarsson verður eftir ráðningu Kate sviðsstjóri Vallarsviðs. Þá hefur Viktor Freyr Sigurðsson tekið við stöðu aðstoðarvallarstjóra en hann mun hefja nám í grasvallarfræðum við Elmwood skólann í Skotlandi næsta haust

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ